Möndlukakan hennar mömmu vekur upp skemmtilegar minningar úr æsku en mér þótti engin kaka jafn góð og möndlukakan með bleika kreminu. Mamma bakaði þessa köku í vikunni og hún kláraðist mjög fljótt, það var þess vegna alveg tilvalið að baka hana aftur í gær og deila uppskriftinni með ykkur. Mamma er ein af þeim sem fylgir sjaldan uppskrift og bakar og eldar eftir minni, ég náði þó að fullkomna uppskriftina og kakan heppnaðist mjög vel. Það er eitthvað við þessa silkimjúku köku sem ég fæ bara ekki nóg af og það virðast flestir vera á sama máli. Þessi kaka er ofureinföld, fljótleg og algjörlega ómótstæðileg. Ef þið viljið slá í gegn í sunnudagskaffinu þá mæli ég með þessari. Möndlukakan hennar mömmu 200 g…