Piparkökubollakökur með ómótstæðilegu karamellukremi

Það styttist í jólin og  eflaust margir í miklu bakstursstuði þessa dagana, þetta er nefnilega tíminn til að njóta. Ég elska að koma heim eftir vinnu, kveikja á kertum og baka eitthvað gott með Ingibjörgu Rósu minni. Við bökuðum þessar ljúffengu piparkökubollakökur um daginn og þær voru virkilega góðar og skemmtileg tilbreyting frá klassísku piparkökunum. Einföld, fljótleg og góð uppskrift sem ég mæli með að þið prófið fyrir jólin. Endilega fáið börnin ykkar til þess að taka þátt í bakstrinum, þau eru nefnilega svo miklir snillingar og hafa gaman af þessu.

Piparkökubollakökur með karamellukremi

ca. 18 – 20 bollakökur
  • 250g sykur
  • 140g smjör, við stofuhita
  • 3egg við stofuhita
  • 250 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • 2 dl rjómi
  • 2 tsk vanilla extract eða vanillusykur (það er líka gott að nota fræin úr
    vanillustöng)
  • 1 tsk kanill
  • ½ tsk malaður negull
  • ½ tsk hvítur pipar
  • ½ tsk engifer krydd
  • Bollakökuform
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C. Þeytið saman smjör og sykur í um það bil þrjár mínútur,
bætið einu og einu eggi saman við. Þeytið vel á milli. Sigtið saman hveiti og
lyftiduft, bætið hveitiblöndunni, vanillu, rjómanum og kryddum saman við
eggjablönduna og þeytið mjög vel í nokkrar mínútur þar til blandan verður
silkimjúk. Skiptið deiginu niður í bollakökuform og bakið við 180°C í 15 – 18
mínútur. Kælið kökurnar mjög vel áður en þið smyrjið á þær krem.
Karamellukrem
  • 200 g smjör, við stofuhita
  • 400 g flórsykur
  • 4 msk þykk karamellusósa t.d. dulce de leche
  • ½tsk kanill
  • 1tsk vanilla extract eða vanillu sykur
Aðferð:
Þeytið smjör og flórsykur saman í nokkrar mínútur, því lengur sem þið hrærið
kremið því betri áferð verður á því. Bætið karamellu, kanil og vanillu út í og
þeytið enn betur í 2 – 3 mínútur. Setjið kremið í sprautupoka og skreytið
kökurnar að vild. Það er afar gott að rífa niður smá súkkulaði og skreyta
kökurnar með súkkulaðibitum eða ferskum berjum.

 

 

 

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

 

Öll hráefnin sem voru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *