*Unnið í samstarfi við Ásbjörn Ólafsson
ca. 14-16 tartalettur
Hráefni:
- Tartalettuskeljar frá Humlum
- 1 rauð paprika
- 1 camembert
- 1 mexíkó ostur
- 1 hvítlauksostur
- 500 ml rjómi
- Góð sulta
Aðferð:
- Hitið olíu í potti og steikið paprikuna í smá stund eða þar til hún er mjúk í gegn.
- Rífið niður ostinn eða skerið smátt, setjið í pott ásamt rjóma og bræðið við vægan hita. Leyfið ostablöndunni að malla í smá stund eða þar til hún fer að þykkna.
- Setjið tartalettuskeljar á pappírsklædda ofnplötu, skiptið ostablöndunni jafnt í formin og inn í ofn við 200°C í 10 – 15 mínútur.
- Leyfið tartalettunum að standa aðeins og kólna áður en þið berið þær fram með ljúffengri sultu.
![](https://i0.wp.com/evalaufeykjaran.is/wp-content/uploads/2020/12/132520140_403944657704038_2716745149338222543_n.jpg?fit=465%2C620)
![](https://i1.wp.com/evalaufeykjaran.is/wp-content/uploads/2020/12/132652128_212447647177865_3641444603927251062_n.jpg?fit=465%2C620)
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir