Hægeldað lambalæri með ljúffengu kartöflugratíni og piparostasósu.

Að elda mat í ofni er einföld matargerð,
það er algjör óþarfi að standa yfir henni þó svo að hún taki stundum langan
tíma. Það er ósköp notalegt að hafa lamb inn í ofni yfir daginn, ilmurinn um heimilið verður svo góður.
Hægeldað lambalæri 
1 lambalæri, rúmlega 3 kg
Salt og nýmalaður pipar
Lambakjötskrydd 1 msk t.d. Bezt á Lambið
Ólífuolía
3 stórir laukar, grófsaxaðir
1 heill hvítlaukur, skorinn í tvennt, þversum
2 fenníkur (fennel), skornar í fernt
3 sellerístilkar, grófsneiddir
5 gulrætur
1 rauð paprika
700 ml grænmetissoð
3 greinar tímían
2 greinar rósmarín
Handfylli fersk steinselja
Aðferð.
1.     Hitið ofninn í 120°C.
2.     Finnið til stóran steikarpott eða stórt eldfast mót.
3.     Leggið lærið í steikingarpottinn eða mótið, veltið upp úr ólífuolíu og kyddið með salti, pipar og lambakjötkryddi.
4.     Bætið grænmetinu í steikarpottinn/eldfasta mótið.
5.     Hellið soði í pottinn. Lokið pottinum eða leggið álpappír þétt yfir mótið.
6.     Bakið lærið í miðjum ofni í sjö klukkustundir.
7.     Þegar 30 mínútur eru eftir af eldunartímanum er lokið eða álpappírinn tekinn af, fínsöxuðum kryddjurtum (steinselju, tímían og rósmarín ) og  hitinn í ofninum hækkaður í 200°C. Þá verður puran dökk og stökk.
8.     Það er mikilvægt að leyfa kjötinu að hvíla í lágmark 20 mínútur áður en þið berið það fram.
Ljúffengt kartöflugratín
 
900 g kartöflur, mér finnst best að nota bökunarkartöflur
8 dl rjómi (það er gott að nota matreiðslurjóma til helminga)
1  laukur, skorinn í strimla
1 kjúklingateningur
1 msk blandað krydd t.d. Bezt á allt
salt og pipar
rifinn ostur
Aðferð:
1. Kartöflurnar skolaðar vel og skornar í sneiðar ca. ½ cm
2. Laukur skorinn niður og steiktur upp úr smjöri í smá stund. Kartöflum, rjóma, kjúklingatening og kryddi er blandan saman í pottinum.
3. Sjóðið við vægan hita í 10-15 mínútur  eða þar til kartöflurnar eru orðnar vel mjúkar.
4. Hellið þá kartöflublöndunni í eldfast mót, dreifið rifnum osti yfir og hitið í ofni við 200°C í ca. 20 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og orðin gullinbrúnn.
Piparostasósa
Smjör1 msk smjör eða olía

250 g sveppir, skornir í sneiðar
1 – 2 tsk lambakjötskrydd t.d. Bezt á Lambið
1/2 l rjómi
1/2-1 piparostur, skorin í smáa bita
½ kjúklingateningurAðferð:

  1. Bræðið smjör í potti. Látið sveppina malla við vægan hita í smjörinu í nokkrar mínútur. Kryddið til með lambakjötskryddi.
  2. Hellið rjóma yfir og bætið piparosti saman við. Látið sjóða saman við vægan hita um stund. Hrærið í á meðan og passið að osturinn brenni ekki við.
  3. Bætið tening í pottinn og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur.
  4. Þessi sósa er jafn góð heit og köld, það er upplagt að bera hana fram með grillmatnum í sumar.
Algjör sælkeramáltíð sem allir ættu að prófa.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

7 comments

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *