Laxa tacos Uppskrift. 600 – 700 g lax, skorinn í litla teninga 2 msk ólífuolía 1 tsk paprikukrydd 1 tsk cumin krydd salt og pipar, magn eftir smekk 1 hvítlauksrif Við steikingu: 1 msk ólífuolía 1 límóna 1 msk sesamfræ Aðferð: Skerið laxinn í jafn stóra bita, kryddið til með kryddunum sem eru talin upp hér að ofan og bætið olíunni saman við. Rífið niður hvítlauk og bætið honum saman við. Hitið ólífuolíu á pönnu, steikið fiskinn í nokkrar mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn. Sáldrið sesamfræjum yfir fiskinn í lokin og kreistið safann úr hálfri límónu yfir fiskinn. Blandið laxinum saman við mangósalsa og berið fram í tacoskeljum. Mangósalsa 1 ferskt mangó í teningum 1 rauðlaukur, meðalstór fínsaxaður ½ agúrka, smátt…