Heimalagað tagliatelle með risarækjum og pastasósu. Hinn fullkomni pastaréttur!


Heimalagað tagliatelle með risarækjum og pastasósu. Hinn fullkomni pastaréttur!

Pastadeig

  • 400 g hveiti
  • 3 egg
  • 4 eggjarauður
  • 1 ½ msk ólífuolía
  • 1 tsk salt

Aðferð:

  1. Setjið hveiti á borðflöt og gerið holu í miðjuna á hveitinu, setjið egg, eggjarauður, salt og ólífuolíu í holuna og blandið öllum hráefnum saman með höndum.
  2. Hnoðið deigið vel í nokkrar mínútur og sláið deiginu upp í kúlu, setjið plastfilmu yfir kúluna og geymið deigið í kæli í 30 – 40 mínútur.
  3. Skiptið deiginu í þrjá hluta og fletjið hvern hluta út, í pastavél eða með kökukefli.
  4. Skerið pastadeigið í þunnar lengjur eða notið pastavélina til þess að móta tagliatelle.
  5. Sjóðið í vel söltu vatni í þrjár mínútur.

Risarækjur í tómata-og basilíkusósu 

  • 1 msk ólífuolía
  • 12 – 14 risarækjur
  • 1 hvítlauksrif
  • ¼ rautt chili
  • 1 msk ólífuolía
  • 2 laukar
  • 2 hvítlauksrif
  • 350 g saxaðir tómatar í dós eða passata
  • 1 kjúklingateningur
  • 1 msk smátt söxuð basilíka
  • salt og pipar
  • parmesan

Aðferð:

  1. Hitið olíu á pönnu, saxið niður eitt hvítlauksrif og ¼ chilialdin, steikið í smá stund á pönnu og bætið síðan risarækjum út á pönnuna og steikið þar til þær eru orðnar bleikar. Takið þær af pönnunni og byrjið á sósunni. (óþarfi að skola pönnuna á milli)
  2. Hitið olíu á pönnu, saxið niður lauk og hvítlauk og steikið þar til laukurinn er orðinn glær í gegn.
  3. Bætið tómötum, kjúklingakrafti og  smátt saxaðri basilíku út á pönnuna og kryddið til með salti og pipar.
  4. Leyfið sósunni að malla í nokkar mínútur og bætið risarækjunum út í lokin.
  5. Rétt áður en þið berið réttinn fram er gott að setja soðið pasta út í sósuna og rífa niður nóg af ferskum parmesan yfir réttinn.

 

Berið strax fram og njótið.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *