Ég er með þurra húð og ég finn það svo sannarlega þegar það kólnar að húðin verður sérstaklega þurr. Ég reyni því að vera dugleg að bera á mig andlitsmaska og rakakrem. Ég keypti mér andlitsmaska frá Académíe fyrir nokkrum vikum. Aprikósu maski sem er að mínu mati ansi góður…
Eftir sumarhuggulegheitin þá getur verið erfitt að koma sér í rútínu. Við bíðum eftir því að komast í sumarfrí.. svo bíðum við eftir því að komast í rútínu. Við erum nú svolítið fyndin, við erum alltaf að bíða. Að mínu mati er best að setja sér markmið fyrir hverja viku, ég…
Kannist þið ekki við tilfinninguna þegar að þið hafið ekki komist út til þess að hreyfa ykkur hvað allt getur verið ómögulegt? Þannig er mér búið að líða undanfarna daga. Þreyta, leti og ómögulegheit. Mikil ósköp, ég veit ég hef sagt það ansi oft en ótrúlegt hvað hreyfing gerir gott…
Það er rosa gott að drekka nokkra svona kokteila eftir góða kokteiladrykkju um helgina. Algjör bjargvættur fyrir þá ryðguðu 🙂 Helgin er búin að vera ótrúlega skemmtileg. Jiminn hvað ég er heppin að eiga svona yndislega vini, maður segir það víst aldrei of oft. Þau eru það skemmtilegasta sem ég…
…Dagkrem. Það er möst að eiga gott dagkrem að mínu mati – ég prufaði eyGLÓ frá Sóley um daginn og er ég afskaplega ánægð. Gaman að nota íslenskar vörur, kremið gefur minni húð mjög fínan raka og ég er með þurra húð. Kostar 4000 kr. í flugvélinni sem er alls…
Ég er í hlaup-átaki. Mig langar agalega til þess að hlaupa mér til skemmtunar, jafnvel ef vel gengur að taka þátt í maraþoni einn góðan veðurdag. Þannig ég er að safna kílómetrum á hverjum degi, þegar að ég segi hverjum degi þá meina ég á hverjum degi frá því á…
Heimalagaður andlitsmaski sem kostar eina tölu. Ég prufaði þessa uppskrift og mér finnst maskinn virka vel á mína húð, ég á líka voða fínan andlitsmaska sem kostaði grilljón og hann er alls ekkert betri. Þannig maður getur verið voða fínn með því sem maður á í ísskápnum. :o) Ég þarf…
Ég fann skemmtilega síðu með ýmsum uppskriftum fyrir húðina. hér koma nokkrar sem ég ætla að prufa. Náttúrlega snilld að bjóða vinkonum heim til sín og dúllerast í þessu, jafnvel svo gott að maður láti Elvis á fóninn á meðan. 🙂 Ódýrar lausnir og góðar lausnir. Hér kemur uppskrift…
.. Lúxusvarningur. Ég reyni að vera sparsöm, eða þið vitið. Ég kaupi mér ekki allt sem að mig langar í – en vitaskuld leyfi ég mér stundum pínu lúxus.. Það sem ég kalla lúxus er það sem ég kaupi mjög sjaldan og held mest upp á. Góð sjampó, baðsölt, fínar…