Sashimi salat með ponzusósu Ákaflega einföld uppskrift að sumarlegu sushi sem er tilvalið sem forréttur eða léttur aðalréttur. Hráefni: 300 g lax, beinhreinsaður og skorinn í þunnar sneiðar 1 lárpera, vel þroskað 1 mangó, vel þroskað Blandað salat 1 dl límónusafi ¾ dl sojasósa ½ rautt chili 1 ½ msk kóríander ¼ tsk rifið engifer 1 msk vorlaukur, smátt skorinn sesamfræ, ristuð Aðferð Best er að byrja á Ponzusósunni en það er japönsk sósa sem gerð er úr sojasósu og límónusafa. Blandið öllum hráefnum saman í matvinnsluvél eða hrærið saman í skál, þannig verður sósan örlítið grófari en báðar aðferðirnar eru jafn góðar. Geymið í kæli á meðan þið setjið laxinn á disk. Skerið laxinn, mangó og lárperu afar þunnt og raðið á stórt…