Guðdómlegt steikar taco

Steikar taco

400 g nautasteik t.d. entrécote

Ólífuolía

1 msk steinselja

¼ rautt chili

Hvítlauksrif

Salt og pipar

Aðferð:

Saxið niður steinselju, chili og hvítlauk. Blandið saman við ólífuolíu og nuddið steikinni upp úr marineringunni, kryddið einnig með salti og pipar.

Hitið grillpönnu og setjið kjötið á þegar pannan er orðin mjög heit, steikið í um það bil fimm til sex mínútur á hvorri hið. Það fer auðvitað eftir þykktinni á kjötinu og smekk hvers og eins.

Kjötið þarf að hvíla í lágmark sex mínútur þegar það er tilbúið. Á meðan undirbúið þið meðlætið.

Þegar kjötið er búið að hvílast þá er gott að skera það í þunnar sneiðar og bera fram með tortillavefjum, hreinum fetaosti, mangó salsa og ljúffengri lárperusósu.

Mangósalsa

1 mangó

10 kirsuberjatómatar

½ laukur

1 msk smátt söxuð steinselja

Ólífuolía

Salt og pipar

Safi úr hálfri límónu (lime)

Aðferð:

Skerið hráefnið smátt og blandið saman í skál, hellið smá ólífuolíu saman við og kryddið til með salti og pipar. Rétt áður en þið berið salatið fram þá kreistið þið vel af límónusafa yfir.

Lárperusósa

4 dl grískt jógúrt

1 lárpera

1 msk smátt saxaður kóríander

1 tsk hunang

Safi úr hálfri límónu (lime)

Salt og pipar

Aðferð:

Setjið öll hráefnin í blandara eða matvinnsluvél og maukið þar til sósan er orðin silkimjúk. Berið strax fram og njótið.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *