*Þessi færsla er kostuð og unnin í samstarfi við AVA aldinvatn Jól í glasi er nafnið á þessum kokteil, hann er einfaldlega svo jólalegur að þetta nafn smellpassar. Ég elska desember og allt sem honum fylgir, jólaboð og hittingar með vinum og fjölskyldu.. svo ekki sé minnst á spilakvöldin! Það er ferlega skemmtilegt að bjóða upp á góða kokteila í boðum og þessi er tilvalin. Einfaldur og bragðgóður… borin fram með stökkum og guðdómlega góðum parmesanflögum sem þið verðið að prófa. Berja moijto með jólaívafi Uppskrift fyrir 2 glös 2 límónur handfylli mintulauf 8 tsk hrásykur 8 cl ljóst romm (auðvitað má sleppa áfenginu) handfylli hindber mulinn klaki Sódavatn rósmarín, til skreytingar kanilstöng, til skreytingar 1 tsk flórsykur Aðferð: Skerið límónu í báta og skiptið…