Kókos- og ananas kokteill sem kemur manni alltaf í sumarskap og í stuð ef út í það er farið. Bragðgóður, ferskur og auðveldur kokteill sem allir ættu að geta leikið eftir.
Piña colada
4 dl frosinn ananas
2 dl ananassafi
1 dl kókosmjólk
4 dl frosinn ananas
2 dl ananassafi
1 dl kókosmjólk
1/2 – 1 dl kókosromm t.d. Malibu (magn fer auðvitað eftir smekk) Skvetta af sítrónusafa
Allt blandað í blandara þar til drykkurinn verður silkimjúkur.
Berið strax fram og njótið.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.