Áramótakokteillinn

Á gamlárskvöld
er tilvalið að bjóða upp á frískandi og bragðgóða kokteila, mér finnst voða
gaman að búa til kokteila og ég vil að þeir séu einfaldir. Mojito er í sérstöku
eftirlæti hjá mér og ég ákvað að setja hann í nýársbúning. Hann er afar
einfaldur og það þarf ekki að kaupa alltof mörg hráefni til þess að búa hann
til. Frískandi, bragðgóður og fallegur drykkur sem á eftir að slá í gegn í
áramótpartíinu! Ég sá svo falleg brómber í Hagkaup í gær og mér datt strax í hug að nota þau í mojito, að sjálfsögðu getið þið notað hvaða ber sem er í þennan drykk og um að gera að prófa sig áfram. Sniðugt snarl til að bera fram með drykknum er poppkorn… í saltkaramellusósu að sjálfsögðu.

Brómberja mojito

Fjögur glös
  • 12 mintulauf
  • 16 brómber  blackberries
  • 4 tsk hrásykur
  • Klakar
  • 8 cl. ljóst
    romm
  • 4 cl. ímónusafi
  • Sódavatn eða
    sprite
Aðferð: Setjið
mintulauf, brómber og sykur í glas, kremjið með endanum á sleif. Bætið rommi,
límónusafa og klökum saman við og hrisstið. Sigtið blönduna í glös og fyllið
upp með sódavatni. Skreytið gjarnan með brómberjum eða mintulaufum.

 

 

 

 

 

Njótið vel kæru lesendur.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *