Þessi vika leið nú ansi hratt enda var svolítið mikið að gera, þegar að ég kom heim úr skólanum þá langaði mig flesta daga í eitthvað ofureinfalt og fljótlegt. Þessi kjúklingaréttur er að mínu mati alltaf góður. Pasta, kjúklingur, fetaostur og kirsuberjatómatar saman í eitt. Útkoman verður dásamleg, veisla fyrir bragðlaukana ef svo má að orði komast. Kjúklingur í pestósósu með Tagliatelle Uppskriftina af kjúkling í pestó finnið þið hér það eina sem ég breytti var að nota grænt pestó í stað þess að nota rautt pestó. Sjóðið tagliatelle samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn skerið hann í litla bita (ef þið viljið) blandið pestósósunni sem er í fatinu við Tagliatelle. Leggið Tagliatelle á disk, leggið kjúklinginn ofan á, skerið nokkra kirsuberjatómata og setjið saman…