Archives

Kjúklingasúpa og Rice Krispies kakan góða.

Mexíkósk kjúklingasúpa Mexíkósk kjúklingasúpa er líklega sú súpa sem ég elda oftast og fæ aldrei nóg af. Þegar von er á gestum er einstaklega gaman að bjóða upp á þessa matarmikla súpu og bera hana fram með nachos flögum, sýrðum rjóma og rifnum osti, þá geta matargestir bætt út í þeim hráefnum sem þeim hugnast best. Súpan er einföld og bragðgóð, en er sjaldnast eins því ég hef gaman af því að prófa mig áfram og nota það sem til er af grænmeti hverju sinni. 4 kjúklingabringur, smátt skornar (eða heill kjúklingur, skorinn í litla bita) 1 rauð paprika, smátt skorin 1 græn paprika, smátt skorin 1 gul paprika, smátt skorin 2 gulrætur, smátt skornar ½ blaðlaukur, smátt skorinn 2 hvítlauksgeirar 1 laukur, smátt skorinn…

Kjúklingur í mangóchutney með ristuðum möndluflögum.

 Veðrið er frekar ljúft í dag og þá er nú ekki annað hægt en að vera glaður. Á svona dögum er líka tilvalið að gera vel við sig í mat, þess vegna ætla ég að deila með ykkur uppskrift sem er í ótrúlega miklu uppáhaldi hjá mér. Kjúklingur í mangóchutney með ristuðum möndluflögum, það er eitthvað við mangóchutney sem fær mig til að brosa og gleðjast. Ég nota það mikið við matargerð, að vísu hef ég aldrei verið það dugleg að búa það til sjálf frá grunni en einn daginn þá ætla ég að prufa það en þangað til þá held ég áfram að kaupa tilbúið mangóchutney sem er líka mjög gott. Þegar ég elda þennan rétt þá miða ég við að það séu tveir…

Japanskt kjúklingasalat

Æ það er svo gott þegar veðrið er svona fínt, ég er komin í vorfíling og ég vona svo sannarlega að þetta veður haldist. Maður veit nú aldrei, fyrir viku síðan var veðrið upp á sitt versta en í dag skín sólin og það er frekar ljúft veður. Ég fylgi veðrinu svolítið, það skiptir máli hvernig veður er úti þegar ég er að ákveða hvað ég eigi að elda. Þegar gott er veður þá kýs ég eitthvað einfalt, fljótlegt og fremur létt. Í gær eldaði ég japanskt kjúklingasalat og mikið sem það er nú gott.  Hér kemur uppskriftin, njótið vel.  Japanskt kjúklingasalat fyrir þrjá til fjóra.  3 kjúklingabringur sweet chili sósa 2 msk. sesamfræ salatpoki (blandað salat, ég notaði spínat og klettasalat að þessu sinni)…

Safaríkar fylltar kjúklingabringur með ofnbökuðum kartöflum og sveppasósu.

Safaríkar fylltar kjúklingabringur með ofnbökuðum kartöflum og sveppasósu. Mér finnst ótrúlega gaman að elda kjúkling, það býður upp á svo marga möguleika. Ég prufaði í fyrsta sinn að elda fylltar kjúklingabringur um daginn og það heppnaðist mjög vel að mínu mati. Ég hef sjaldan verið eins södd og sæl eftir máltíð. Þetta er að mínu mati tilvalinn helgarmatur ef svo má að orði komast, ég veit ekki með ykkur en ég legg svolítið meira upp úr matnum sem ég borða um helgar. Líklega er það vegna þess að þá er meiri tími til þess að dúllast og prufa sig áfram í eldhúsinu.  Ég var svo heppin að fá foreldra og litla bróðir heim frá Noregi um helgina svo það verður aldeilis veisla í mömmukoti alla…

Lífið instagrammað

                      1. Hugguleg kvöldstund með uppáhalds bókunum og tímaritunum mínum. 2. Vinkonur ánægðar með Stúdentakjallarann sem var opna.   3. Kjúklingur í rjómasósu með beikoni og sveppum, gúrme.  4. Hressir Vökuliðar á listakynningu Vöku.  5. Ég og Sara í frambjóðendaferð Vöku             6. Elsku vinir mínir að syngja og halda uppi fjörinu.   7. Heitt súkkulaði með miklum rjóma á ljúfum laugardegi  8. Anna Fríða og Anna Margrét, vinkonur mínar í viðskiptafræðinni. Langþráður lunch eftir jólafríið.  9. Í dag var sól, þá lét ég auðvitað sólgleraugun upp.  10. Rjómalöguð tómatsúpa og salat, uppskriftin kemur inn á morgun kæru vinir.  Ykkur er velkomið að fylgjast með mér á instagram, finnið mig undir evalaufeykjaran. …

Kjúklingabringur í rjómasósu með beikoni og sveppum.

Það hefur verið svokallað inniveður undanfarna daga og þá finnst mér ekkert huggulegra en að koma heim úr skólanum og fara beinustu leið inn í eldhús að dunda mér við matargerð.   Ég bauð bróður mínum og kærustunni hans í mat og við vorum öll sammála um að þetta væri einn sá besti kjúklingaréttur sem við höfum smakkað.  Við kláruðum réttinn og það er alltaf góðs viti að mínu mati, þá veit ég að rétturinn var góður. Við sátum svo yfir sjónvarpinu, pakksödd að horfa á landsleikinn sem því miður endaði ekki nógu vel.  Þeir standa sig nú alltaf afskaplega vel strákarnir, við getum ekki alltaf unnið 🙂  En hér kemur uppskriftin að sérstaklega bragðgóðum og einföldum kjúklingarétt sem við vorum svo ótrúlega ánægð með í…

Bragðmikil kjúklingasúpa með eplum, karrí og kókosmjólk.

Ég fór út í matarbúð til þess að kaupa mér hráefni til að útbúa bruschettu með tómötum-og basiliku. En þegar að ég kom í búðina þá var lítið úrval af ferskum kryddjurtum og mér fannst ómögulegt að fara að gera bruschettu án þess að hafa ferska basiliku svo ég þurfti að koma með hugmynd að öðrum rétti til þess að hafa í kvöldmatinn. Þá datt mér í hug súpa sem vinkona mín hefur verið að tala mikið um við mig, já ég og Agla vinkona tölum nærri því eingöngu um mat. Mér þótti þessi súpa einstaklega heillandi og ég mundi svona hér um bil hvaða hráefni áttu að fara út í súpuna. Þá var málið leyst, ég ákvað að hafa súpuna í matinn og sé…

Kjúklingur í pestójógúrtsósu með ofnbökuðu grænmeti

 Okkur ömmu langaði í eitthvað voðalega gott í gærkvöldi, eitthvað einfalt og gott. Við drifum okkur út í Krónu um kvöldmatarleytið. Við stóðum lengi hjá kjötborðinu, skoðuðum úrvalið fram og tilbaka með tilheyrandi valkvíða. Að lokum þá gripum við pakka af kjúklingabringum með okkur , þá var bara spurningin hvernig við ætluðum að matreiða kjúklinginn. Við vorum ekki lengi að ákveða okkur, kjúklingabringur í pestó er í miklu eftirlæti hjá okkur báðum svo við ákváðum að hafa þann rétt í matinn með smá breytingum. Við gripum rautt pestó, fetaost, grískt jógurt og allskyns grænmeti með okkur líka. Þá gátum við loksins drifið okkur heim að elda!   Kjúklingur í pestójógúrtsósu með ofnbökuðu grænmeti. Uppskrift miðast á við 3 – 4. 1 pakki kjúklingabringur (3 –…

Ofnbakaður plokkfiskur

Ofnbakaður plokkfiskur  Uppskrift miðast  við um það bil fjóra manns 600 g ýsa, roð- og beinlaus 400 g kartöflur 1 meðalstór laukur, smátt saxaður 2 msk vorlaukur, smátt saxaður 4 dl mjólk 1 dl fiskisoð 3/4 dl hveiti 60 g smjör 1 1/2 tsk karrí 1/2 spergilkálshöfuð rifinn ostur, magn eftir smekk salt og pipar, svolítið vel af pipar 1. Sjóðið kartöflurnar, afhýðið og skerið í bita. Skerið ýsuflökin í bita og sjóðið, látið suðuna koma upp og slökkvið síðan undir hellunni og látið standa á meðan sósan er útbúin, í um 10 mínútur. (Munið að geyma fiskisoðið) 2. Afhýðið og saxið lauk. Hitið smjör í potti og mýkið laukinn. 3. Hveitinu er bætt við smjörið og laukinn, hrærið vel í á meðan. 4. Því…

Kjúklingasalat

Sumir dagar eru ansi þéttir og mikið sem þarf að gera, en það þýðir þó ekki að sleppa við að hafa eitthvað gott í kvöldmatinn. Það er alltaf hægt að finna smá tíma fyrir matargerð. Að búa til einfalt og matarmikið salat tekur ekki lengri tíma en  20 mínútur.  Þetta salat geri ansi oft, geri það nú sjaldan eins en mér finnst þessi útgáfa eiginlega sú besta.   Kjúklingasalat Fyrir u.þ.b. 3 – 4 manns 2  kjúklingabringur 1 poki af blönduðu salati, pokinn var 200 g  100 g Tagliatelle 1/2 agúrka  1 græn paprika 1 rauð paprika 1/2 rauðlaukur  10 kirsuberjatómatar 1/2 krukka fetaostur, gott að setja smá af olíuna líka rifinn parmesan ostur, magn eftir smekk 1 askja jarðaber mulið nachos með saltbragði, magn eftir smekk 1…

1 18 19 20 21