Ég var að koma heim úr næturflugi en ég þarf alltaf smá tíma til þess að ná mér niður áður en ég fer að sofa. Ég hellti mér upp á smá morgunkaffi (eiginlega bara til þess að finna kaffilyktina) er með ný tímarit fyrir framan mig sem ég ætla að glugga í, dagbókin góða er auðvitað líka með því næstu dagar verða sérdeilis skemmtilegir og mikið að gera, svo það er gott að hafa skipulagið ágætt. Annars þá finnst mér eitthvað svo notalegt við að sitja hér inni, ein í kyrrðinni og úti er hundleiðinlegt veður, svei mér þá ef það kallar ekki á góðan súkkulaðibolla. Nú er ég komin með verkefni þegar ég vakna á eftir ; laga heitt súkkulaði og þeyta rjóma. 😉 …