Ég elska að fara út að borða og njóta í góðra vina hópi. Úrvalið af góðum veitingastöðum er gott og það er svo gaman að fara út að borða, allir staðir troðfullir af fólki og miðbærinn iðar af mannlífi. Ég og vinkona mín hún Dísa fórum út að borða á Public…
Ég held að það sé fátt huggulegra en að klæða sig upp og fara fínt út að borða með góðu fólki. Að gera sér almennilegan dagamun og njóta. Restaurant Reykjavík er glæsilegur veitingastaður í hjarta borgarinnar. Húsið var byggt árið 1863 svo það má með sanni segja að þetta sé…
Sumardagurinn fyrsti hófst með lestri fyrir blessuð prófin en um kaffileytið þá tók ég fagnandi á móti sumrinum ásamt vinkonum mínum og litla vini mínum honum Rúrik. Við prufuðum nýja kaffimatseðilinn á Galító og allt var rosalega gott. Virkilega skemmtilegt eftirmiðdegi. En nú hefst hagfræðifjör á ný. Ég vona að…
Í kvöld þá fórum við Haddi ásamt vinafólki okkar út að borða á veitingastaðinn Þrír Frakkar. Þetta var í fyrsta skipti sem ég hef komið þangað og ég var ótrúlega ánægð með kvöldið. Fallegur og heimilislegur veitingastaður, góð þjónusta, fjölbreyttur matseðill þar sem rík áhersla er lögð á sjávarfang. Ég…
Í gær var svo sannarlega rjómalagaður laugardagur. Ég fór í jólabrunch með vinkonum mínum á Nítjándu, þar borðaði ég yfir mig af ljúffengum kræsingum og hafði það notalegt í góðum félagsskap. Seinna um daginn fórum við Haddi út að borða með vinafólki okkar og svo að sjá uppistand með þeim…
Jómfrúin í hádeginu. Betra verður það ekki. Maren Rós fjörug á fertugsaldri. Elsku amman mín Móðir mín fallega. Mæðgur aðeins að rökræða hver ætti að taka reikninginn eins og gerist stundum. xxx