Skóladagar. Það er svo sannarlega að koma október, tíminn flýgur. Dagarnir eru ansi langir.
 Fer út klukkan sjö á morgnana og er búin í skólanum um fimm – sexleytið. Svo heim, matur, hreyfing og lærdómur. Ef til vill smá tiltekt… en bara smá. 
Próf, verkefnaskil og mikill lestur = Október. Dásemd. 
Ég bakaði mér súkkulaðiköku í kvöld – ég var að pirrast yfir verkefni sem er pínu snúið. En hvað haldið þið? Góð súkkulaðikaka kemur skapinu í lag. 
Nú ætla ég að fá mér kaffibolla, já svona seint. Hér á þessu heimili er nóttin ung. Þarf að sigra þetta verkefni. 
xxx

Endilega deildu með vinum :)

1 comment

  • VÁ! Svakalega er skóladagurinn langur hjá þér. Vitlaust að gera í viðskiptafræðinni! Ekki er hann svona ALLA daga vikunnar? Trúi því að þú hafir þurft smá súkkulaði og sykur í kroppinn 🙂

    Þannig bara fjör framundan í lærdómi! Ég er í sama pakka hérna megin 🙂 Nóg að gera í október – en samt ekki próf fyrr en í desember 🙂

    Good luck hon.

    Kærlig hilsen – Sólrún Perla.

Leave a Reply to Anonymous - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *