Archives

Sunnudagsmorgun

Morgunmaturinn minn. Spínatsafi, vanillujógúrt með múslí og hindberjum.  Sunnudagslúxusinn er amerískar pönnukökur og kirsuber.  Nú ætla ég að drífa mig út að hlaupa og leika við litlu prinsana mína. Ég fer heim í dag, mikið sem ég eftir að sakna allra strax. Agalega leiðinlegt að kveðja!  Ég vona að þið eigið ljúfan sunnudag   xxx Eva Laufey Kjaran

Pizza pizza

 Sólríkur dagur í Noregi í dag. Við ákváðum að halda pizzu veislu í kvöld þar sem ég fer nú heim til Íslands á morgun. Ég baka alltaf þennan pizzubotn, hann er ótrúlega einfaldur og góður. Ég gerði mér pizzu sem ég smakkaði á veitingastaðnum sem ég vann á í Oxford fyrir tveimur árum. Pizza di’capria. Ofan á pizzuna fer meðal annars geitaostur, ég smakkaði þann ost fyrst í Bretlandi og mikil ósköp sem hann er góður. Bragðmikill og er dásamlegur með ferskum aspas, sjálf er ég ekki mikið fyrir mjög sterka osta, en geitaostur er svakalega bragðmikill en mildur í senn, ljómandi góður ostur. Ferskur aspas, ég sýð hann í saltvatni í fjórar mínútur, þerra hann vel og læt ofan á pizzuna áður en hún…

17.maí

Þjóðhátíðardagur norðmanna. Mér finnst svo fallegt hvað norðmenn halda upp á daginn sinn, það hlakkar öllum til að fagna landinu. Mér finnst þjóðbúningar norðmanna sérstaklega fallegir. Fallegt að sjá lítil börn hlaupa um í fallegum þjóðbúningum.  Íslendinga „hornið“  Kristían Mar Kjaran og tvær fallegar dömur í fallegum þjóðbúning.  Svo sáttir að fá ís. Snúllur. xxx Eva Laufey Kjaran

Sushi

Í gær þá ákvað ég að laga sushi, í fyrsta sinn ein. Lax, lúða, krabbi, allskyns grænmeti, risarækjur og hrísgrjón. Það tók smá tíma að laga hrísgrjónin og smá dúll að laga bitana, en vel þess virði vegna þess að sushi er svo dásamlega gott.    Ferskt og gott hráefni.  Fallegur lax.  Sushirúlla, svo gat ég ekki tekið fleiri myndir vegna þess að ég var orðin svo klístruð. Þannig þetta eru einu myndirnar af sushigerðinni sjálfri. 🙂  Afmælisbarnið komin í betri klæðin og spennt fyrir sushiáti  Þessi er uppáhalds. Djúpsteikt rúlla með risarækju.  Lax og lúða.  Afmælisborðið.  Lax, avókadó, vorlaukur og rjómaostur. Delish. Sushi og hvítvín. Mikið sem ég er heppin að eiga góða í kringum mig því ég átti ansi ljúfan afmælisdag. Í dag er þjóðhátíðardagur…

Afmælisgleði

 Afmælisgleði.  Í maí þá eigum við mamma og Steindór afmæli.  Steindór Mar átti afmæli í gær, ég í dag og mamma þann 18 maí.  Í gær þá bakaði ég einfalda súkkulaðiköku handa Steindóri mínum og skreytti með kitkat, smarties og slaufu. Mjög skemmtileg kaka.  Ég var vakin í morgun af prinsunum mínum.  Pakkar og rjómaterta í morgunsárið, ekki aldeilis slæm byrjun á góðum degi. Ég er ótrúlega mikið afmælisbarn – sennilega of mikið. En það er svo gaman að eiga afmæli! Ég er búin að hafa það virkilega gott í dag og það stefnir allt í ljómandi fínt kvöld. Ég ætla að ráðast í sushigerð. Sushi og hvítvín skal það vera í kvöld.  Nývöknuð og búin að setja á mig hið fínasta glingur, strákarnir mínir…

Insalata Caprese

Insalata Caprese Mjög einfalt ítalskt salat sem samanstendur af ferskum mozzarella osti, tómötum, ferskri basiliku, ólífuolíu, salti og pipar.  Fyrir fjóra 4 tómatar 1 stór mozzarella ostur Basilika Salt Pipar Ólífuolía 1. Byrjið á því að skola tómatana vel og skera þá í sneiðar.  2. Skerið mozzarella ostinn í sneiðar. 3. Hitið ofninn í 180°C og setjið tómata í eldfast mót inn í ofn í 4 – 5 mín.  4. Takið tómatana út úr ofninum.  5. Náið ykkur í stóran disk eða fjóra litla diska og raðið salatinu upp.  6.  Ca. 4 sneiðar af tómat og 3 sneiðar af osti. Basilikulauf sett inn á milli.  7. Salt og pipar að vild. Að lokum dreifum við smá ólífuolíu yfir réttinn. Einfaldara verður það ekki.  Það er…

14.05.12

  Sumarlegt í Noregi. Pínu kalt – en sumarið er þó á leiðinni.  Mikið sem mér finnst gott að vera í mömmukoti.  Þau búa á dásamlegum stað og það er agalega huggulegt að vera hér í sveitinni.  Elsku mamman mín og Steindór minn. Við mæðgur að vandræðast. xxx Eva Laufey Kjaran

Sunnudagsbröns

 Í dag er mæðradagurinn svo við ákváðum að hafa smá bröns í morgunsárið.  Hugguleg byrjun á deginum.  Þessir tveir eru alltaf í stuði og alltaf til í borða.  Íslenskar pulsur eru vinsælar hjá lillunum mínum.  Amerískar pönnukökur 1 Egg 1 1/2 tsk. Sykur 5 dl. Hveiti 3 tsk. Lyftiduft 1/2 tsk. Salt 3 msk. Smjör ( bráðið) 4 dl. Mjólk (Ef ykkur finnst deigið of þykkt þá bætið þið meiri mjólk út í) 1 tsk. Vanilla extract 1. Sigtið saman hveiti, lyftidufti og salt í skál.  2. Bræðið smjör, leggið til hliðar og kælið. 3. Hrærið mjólk og eggjum saman í annarri skál. 4. Setjið mjólkurblönduna út í hveitiblönduna og hrærið vel saman.  5. Bætið smjörinu saman við í nokkrum pörtum og hrærið vel á…

Korter

Korter er ný bók eftir Sólveigu Jónsdóttir. Bókin fjallar um fjórar konur á Íslandi sem standa frammi fyrir breytingum í lífi sínu. Mig langar til þess að mæla með að þið lesið þessa bók. Ótrúlega vel skrifuð og skemmtileg bók.  Ég hlakka til að lesa fleiri bækur eftir yndislegu Sólveigu.  xxx Eva Laufey Kjaran

Súkkulaðimús með berjum

  Einföld og ljúffeng súkkulaðimús með ferskum berjum og rifnu súkkulaði.  Það er fátt betra að mínu mati en ljúffengur desert eftir góða máltíð.  Í gær þá gerðum við einfalda súkkulaðimús, skreyttum hana með berjum og rifum niður dökkt súkkulaði til að toppa réttinn.  Uppskrift finnið þið hér Það sem mér finnst best við þessa mús er að það tekur enga stund að laga hana ooog svo smakkast hún dásamlega.  Það getur verið vandasamt að velja bestu skálina…. Ég vona að þið njótið og mæli með að þið prufið xxx Eva Laufey Kjaran

1 45 46 47 48 49 80