Á morgnana eða seinni partinn, já eða bara hvenær sem er yfir daginn elska ég að skella í hristing sem keyrir upp orkuna. Uppskriftin hér að neðan er í miklu uppáhaldi hjá mér en ég elska döðlur, elska hnetusmjör og öll þau hráefni sem finna má í þessum ljúffenga hristing. Ferskt, einfalt og fljótlegt! Ég lofa að þið eigið eftir að gera þennan aftur og aftur. Hristingur með hnetusmjöri og döðlum 200 g vanilluskyr 1 banani 4 döðlur 1 msk gróft hnetusmjör 1/2 msk chiafræ eða önnur fræ t.d. hörfræ appelsínusafi, magn eftir smekk klakar Aðferð: Setjið allt í blandarann og blandið þar til drykkurinn verður silkimjúkur. Berið strax fram og njótið! xxx Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir Allt hráefnið sem notað er í þessa…