Ég gleymdi ekki bóndadeginum en ég var hins vegar ekki nógu sniðug og búin að plana einhver huggulegheit í morgunsárið, sem betur fer var Hadda boðið í bóndadagskaffi á leikskólanum hjá dóttur okkar. Þannig dagurinn byrjaði vel hjá Hadda og ég hef enn tíma til þess að bæta upp fyrir þessi mistök í morgunsárið. Í kvöld ætla ég að minnsta kosti að elda eitthvað ofsalega gott og hef augastað á nautakjöti með heimalagaðri bernaise sósu… og steiktum kartöflubátum. Hér fyrir neðan er tillaga að fullkomun þriggja rétta kvöldverð sem þið getið borið fram í kvöld eða á morgun.. eða á sunnudaginn. Þessi þrenna mun aldeilis ekki klikka, því get ég lofað ykkur.
Silkimjúkt risotto með ferskum aspas og steiktu beikoni. Himnasæla, já himnasæla. Uppskriftin er hér
Nautasteik með chili-bernaise, já ég vona að þið hafið fengið vatn í munninn. Uppskriftin er hér.
Dúnamjúk súkkulaðikaka með heimagerðum kaffiís. Uppskriftin er hér.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir