Risotto með ferskum aspas og stökku beikoni

Risotto er guðdómlegur hrísgrjónaréttur sem sameinar allt það sem mér þykir gott. Hægt er að útfæra réttinn á marga vegu og í þætti gærkvöldsins eldaði ég Risotto með ferskum aspas, stökku beikoni og sveppum. Einfalt og brjálæðislega gott með miklum parmesan. Ég pantaði mér Risotto á veitingahúsi í London fyrir nokkrum árum og kolféll fyrir honum, silkimjúkur og ómótstæðilega góður…

Risotto með ferskum aspas og stökku beikoni

  • 1 msk ólífuolía +
    klípa smjör
  • 1 laukur
  • 1 sellerí stilkur
  • 2 hvítlauksrif
  • 4 dl arborio
    hrísgrjón
  • 250 g smátt
    skorinn aspas
  • 8 sveppir, smátt
    skornir
  • 8 dl kjúklingasoð
  • 2 dl hvítvín
  • Salt og pipar
  • 60-80 g parmesan
    ostur
  • 2 msk smjör

 

Ofan á:
  • 100 g beikon
  • 100 g aspas
  • 100 g sveppir

 

Aðferð:
  1. Hitið ólífuolíu í
    potti og steikið laukinn, sellerí og hvítlauk í 2-3 mínútur. Bætið smátt
    söxuðum aspas og smátt söxuðum sveppum út í pottinn og steikið, bætið því næst
    arborio grjónum út í og hrærið stöðugt.
  2. Hellið hvítvíninu saman við og leyfið
    því að sjóða niður, bætið næst kjúklingasoðinu smám saman viðog hrærið mjög vel
    á milli.
  3. Bætið parmesan ostinum og smjörinu saman við í lokin og kryddið til
    með salti og pipar. Steikið beikon, aspas og sveppi á pönnu þar til hráefnin
    eru vel stökk. Setjið Risotto á disk og skreytið með stökku beikoni, aspas og
    sveppum. Rífið gjarnan niður meiri parmesan og stráið yfir réttinn í lokin.

 

Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2.
 
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *