Vikuseðill

Mánudagur: Buffaló kjúklingavængir og gráðostasósa er réttur sem er mjög viðeigandi á leikdegi. Áfram Ísland!

Þriðjudagur: Ofnbakaður plokkfiskur með rúgbrauði. Einfalt og ómótstæðilega gott!

Miðvikudagur: Kjúklingabitar í mangóchutney sósu með ristuðum möndlum.

Fimmtudagur: Kröftug haustsúpa sem allir elska. 

Föstudagur: Geggjuð pönnupizza með jalepeno osti.

Helgin: Grilluð nautalund með öllu tilheyrandi, veislumatur!

Bakstur helgarinnar: Franskt eggjabrauð er einfaldlega lostæti, get ekki beðið eftir að borða þetta um næstu helgi.

Njótið vel.

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessar uppskriftir má finna í Hagkaup.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *