Kröftug haustsúpa

Í gærkvöldi eldaði ég þessa ljúffengu súpu sem er að mínu mati fullkomin á haustin, ég keypti hakk fyrr um daginn og ætlaði að elda takkó en mig langaði miklu meira í súpu og þess vegna ákvað ég að prófa að nota hakkið í þessa kröftugu „gúllassúpu“. Það kom mjög vel út og súpan varð aðeins léttari fyrir vikið, ég elska gúllassúpur og þessi hér sem er uppskrift frá mömmu minni er í miklu uppáhaldi. Ég studdist við hana þegar ég eldaði þessa súpu í gær og notaði bara það sem ég átti til í ísskápnum, þá má sko aldeilis leika sér með hráefnin í þessari uppskrift – ekkert er heilagt í súpugerð 🙂

Kröftug haustsúpa

  • 1 msk olía
  • 400 g nautahakk
  • 5 sneiðar beikon
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 3 gulrætur
  • 1 rauð paprika
  • 5 – 6 kartöflur
  • 5 – 6 sveppir
  • 2 dósir saxaðir tómatar (400 g dósin)
  • 1 líter soð (soðið vatn + tveir nautakraftsteningar)
  • salt og pipar
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • 1 tsk paprika

Aðferð:

  1. Hitið olíu í stórum potti, steikið hakkið og smátt skorið beikon þar til beikonið er orðið stökkt. Kryddið hakkið að sjálfsögðu með salti og pipar.
  2. Skerið lauk, hvítlauk, gulrætur, papriku, kartöflur og sveppi afar smátt og bætið út í pottinn, steikið í smá stund eða þar til grænmetið er orðið mjúkt.
  3. Kryddið til með þeim kryddum sem eru talin upp hér að ofan.
  4. Hellið söxuðum tómötum og soðinu út í pottinn og náið upp suðu.
  5. Leyfið súpunni að malla í 20 – 30 mínútur, ef þið hafið nægan tíma þá er frábært að leyfa súpunni að malla við vægan hita lengur en súpan verður mun bragðmeiri ef hún fær að malla í svolitla stund.
  6. Berið súpuna fram með sýrðum rjóma og smátt saxaðri steinselju eða klettasalati.

Njótið vel.

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *