Pönnupizza með jalepeno osti

 

Pönnupizza með jalepeno osti og
sveppum
Pizzabotn

  • 240 ml volgt
    vatn (mikilvægt að vatnið sé volgt)
  • 2 ½ tsk
    þurrger
  • 1 msk hunang
  • 400 – 450 g
    brauðhveiti
  • 1 tsk
    salt
  • 2 msk
    olía

 

Aðferð:
  1. Blandið volgu
    vatni, geri og hunangi saman í skál.
  2. Leggið viskastykki
    yfir skálina og leyfið gerinu að leysast upp í rólegheitum, eða í 7-10 mínútur.
    Um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerblandan tilbúin.
  3. Hellið
    gerblöndunni í hrærivélaskál og bætið öllum hráefnum saman við, það er góð
    regla að bæta hveitinu smám saman við.  Það gæti þurft minna en meira af
    hveitinu.
  4. Látið hnoðast í
    vélinni í 6 – 10 mínútur eða þar til deigið er orðið í laginu eins og kúla,
    einnig á það ekki að vera klístrað.
  5. Setjið
    viskastykki yfir hrærivélaskálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund eða
    þar til þar hefur tvöfaldast að stærð.
  6. Fletjið deigið út, þetta deig dugar
    í tvær pizzur.
  7. Hitið smávegis af olíu á pönnu,
    passið að pannan sé mjög heit þegar þið setjið deigið á pönnuna.
  8. Steikið pizzabotninn á pönnunni í nokkrar
    mínútur eða þar til botninn er orðinn stökkur, bætið þá kjúklingnum ofan á og
    sáldrið ferskum mozzarella osti yfir.
  9. Bakið í ofni við 200°C í 5 – 7
    mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn.

 

Fylling
  • 1
    dós sýrður rjómi
  • 1 Jalepeno
    ostur
  • 1 hvítlauksrif
  • Salt
    og nýmalaður pipar
  • 200
    g sveppir steiktir upp úr smjöri og hvítlauk
  • Hægeldaðir
    tómatar
  • Smátt
    söxuð steinselja
Aðferð:
  1. Fletjið út pizzadeigið og leggið á pappírsklædda
    ofnplötu.
  2. Rífið niður jalepeno ostinn og hrærið saman við sýrða rjómann,
    pressið hvítlauksrifið og blandið saman við. Kryddið til með salti og pipar.
    Smyrjið ostablöndunni á botninn.
  3. Steikið sveppina upp úr smjöri og pressið eitt hvítlauksrif út í pottinn,
    þerrið sveppina vel áður en þið setjið þá á pizzuna.
  4. Bakið við 220°C í 10 – 12
    mínútur. Ofnar eru auðvitað misjafnir og það gæti verið að þið þurfið að baka
    hana lengur en pizzan er klár þegarr hún er gullinbrún. Það er mjög gott að
    setja hægeldaða tómata og smátt saxaða steinselju yfir pizzuna í lokin.

 

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:15 á Stöð 2.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni se

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *