Ég held áfram að deila með ykkur uppskriftum að girnilegum eftirréttum, fyrst ég er nú byrjuð! Um helgina var ég í miklu eftirréttastuði, það er í alvörunni hægt að vera í stuði fyrir ákveðnum réttum 🙂 Ég ákvað að búa til þennan einstaklega góða súkkulaðibúðing sem er í miklu uppáhaldi hjá manninum mínum honum Hadda. Þetta er líklega mest „save“ eftirréttur sem ég veit um, en það er mjög erfitt að klikka á þessari uppskrift og öllum finnst súkkulaðibúðingur góður, ég þori eiginlega að lofa því. Ég hef að minnsta kosti ekki hitt þann sem finnst súkkulaði vont 🙂
Ef þið eruð í stuði fyrir súkkulaði um jólin þá mæli ég eindregið með þessum eftirrétt.
Silkimjúkur súkkulaðibúðingur
- 40 g smjör
- 240 g súkkulaði (til dæmsi suðusúkkulaði)
- 300 ml rjómi
- 3 egg
- 2 msk sykur
- 1 tsk vanilla
Aðferð:
- Bræðið smjör, saxið súkkulaði smátt og setjið út í pottinn með smjörinu. Bræðið súkkulaðið við vægan hita. Leggið súkkulaðiblönduna til hliðar þegar súkkulaðið er bráðnað og kælið mjög vel.
- Þeytið rjóma og leggið til hliðar.
- Stífþeytið eggjahvítur og sykur, bætið sykrinum saman við í tveimur skömmtum.
- Setjið þrjár eggjarauður út í súkkulaðiblönduna og hrærið vel, því næst hellið þið súkkulaðiblöndunni saman við stífþeyttan marensinn og blandið varlega saman.
- Í lokin er rjómanum bætt saman við og einni teskeið af vanillu.
- Hellið súkkulaðibúðingnum í eina stóra skál eða skiptið honum á milli í litlar skálar.
- Kælið í lágmark þrjár klukkustundir en best yfir nótt.
- Berið súkkulaðibúðinginn gjarnan fram með ferskum berjum, hindber eru til dæmis fullkomin með súkkulaði.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.