Klukkan fjögur ákvað ég nú að gera vel við mig í kaffitímanum, átti ég að hlaupa út í bakarí eða drífa mig í að henda í nokkrar pönnukökur? Ég var ekki lengi að ákveða mig, þessar pönnukökur er þrælgóðar og fljótlegar. Ég er alltaf að reyna að krydda svolítið upp á þær því þær eru vissulega hollari en „venjulegar“ pönnukökur og þá er bragðið ekki það sama. En mér finnst þær góðar og í dag þá prufaði ég að útbúa smá bláberjamauk í stað þess að nota síróp, eða við skulum bara kalla það bláberjasíróp. Það hljómar ágætlega.
En hér kemur uppskriftin af einföldum pönnukökum og bláberjasírópinu einfalda, ég notaði sérlega mikið á mínar pönnsur vegna þess að ég er svo hrikalega skotin í bláberjum.
Pönnukökur:
-
100 gr. Haframjöl
-
150 gr. Létt AB-mjólk
-
2 msk. Fínmalað speltmjöl
-
2 msk. Kókos olía
-
1/2 tsk. Lyftiduft
-
1 1/2 – 2 tsk. Kanill
-
1/2 tsk. Vanillu extract (Eða dropar)
-
1 Egg
-
1 tsk. Agave-síróp
Þessu eru öllu blandað vel saman í 2 – 3 mínútur í hrærivél.
Sírópið:
ca. 50 – 60 gr. Bláber (ég notaði í þetta skiptið frosin)
2 msk. Agave síróp
1/2 tsk. Kanill
1 1/2 msk. Rifinn sítrónubörkur
Ég byrjaði á því að skola vel bláberin vegna þess að þau voru frosin, lét svo allt saman í pott og sauð við vægan hita í um það bil 5. mínútur og hrærði vel í á meðan þar til þetta var orðið að fallegu mauki.
Svo stráði ég nokkrum kókosflögum yfir.
Fallegar og fínar pönnsur, þær glöddu mig svo sannarlega.
xxx
Eva Laufey