Þegar ég var yngri var þessi kaka í miklu uppáhaldi og það hefur ekki breyst. Mamma mín var mjög dugleg að baka og oftar en ekki beið þessi okkar þegar við komum heim úr skólanum. Kökuilmurinn sem tók á móti okkur var dásamlegur og það er fátt sem jafnast á við góðan kökuilm. Það kannast örugglega margir við þessa uppskrift enda vinsæl á mörgum heimilum, ég má til með að deila henni og ég vona að þið njótið vel.
Mömmudraumur
150 g sykur
150 g púðursykur
130 g smjör
2 Brúnegg, við stofuhita
260 g Kornax hveiti
1 tsk matarsódi
1,5 tsk lyftiduft
salt á hnífsoddi
50 g kakó
2 dl mjólk
Aðferð:
- Þeytið
sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós. - Bætið
eggjum saman við, einu í einu. - Blandið
þurrefnum út í deigið ásamt mjólkinni. - Skiptið
deiginu niður í tvö smurð hringlaga form og bakið við 180°C í 20 – 25 mínútur.
Súkkulaðikrem
500 g flórsyku
60 g kakó
1 Brúnegg
80 g smjör
1 tsk vanilla (extract eða dropar)
4 msk sterkt uppáhellt kaffi
Aðferð:
- Bræðið
smjör við vægan hita - Blandið
öllu saman í hrærivélaskál og þeytið þar til kremið verður silkimjúkt og
fallegt.
Það er mjög mikilvægt að kæla kökubotnanna áður en þið smyrjið kreminu á
milli botnanna og yfir alla kökuna. Skreytið gjarnan með kökuskrauti eða
ferskum berjum.
milli botnanna og yfir alla kökuna. Skreytið gjarnan með kökuskrauti eða
ferskum berjum.
Kakan er alltaf jafn lövlí. Einföld og bragðgóð.