24.10.11

Mánudagur enn á ný. Fallegt veður og góð vika að hefjast, mamman mín kemur heim í vikunni og það verður ó svo gott að komast í mömmuknús. Það jafnast ekkert á við það. 
Ég útbjó í gær mér til gamans like- síðu á facebook fyrir bloggið. Gaman að sjá hverjir fylgjast með blogginu og takk innilega fyrir að nenna að koma hingað og lesa. https://www.facebook.com/pages/evalaufeykjarancom/290343130980942 hér er slóðin ef þið viljið smella einu like eða svo. 🙂 
 Ég fæ oft svo mörg falleg skilaboð og það er gaman að það séu einhverjir sem hafa gaman af þessu. Allavega finnst mér þetta ótrúlega skemmtilegt. 
Á mánudögum þá þráir líkaminn eitthvað ferskt og gott eftir helgarsukkerí. Mér finnst mjög gott að fá mér hrökkbrauð í hádeginu og eiginlega bara hvenær sem er. 
Létt og gott í maga. 
Hugmynd að hádegismat. 
Hrökkbrauð
Kotasæla
Salsasósa
Salat: 
Rucola
Rauðlaukur
Paprika
Agúrka 
Salt & pipar. 
Þetta er dásemd. Hollt, ferskt og bragðmikið. 
Lövlí. 
Gleðilegan mánudag 
xxx

Endilega deildu með vinum :)

4 comments

  • Mikið er ég ánægð með bloggið þitt! Þú minnir mann á það hvað það er mikilvægt að vera hamingjusamur í eigin skinni, borða góðan mat og njóta þess og hreyfa sig skynsamlega og njóta þess – ekkert útlitsdýrkunarbull! Takk kærlega fyrir gott blogg, hlakka til að lesa meira 🙂

  • Þú ert yndislegust Oddný Björg.

    Takk fyrir að lesa bloggið og gaman að heyra að þú hafir gaman af. Já – það er sko mikilvægt að líða vel í eigin skinni. Ef maður gerir það ekki þá virkar ekkert sem skyldi í kringum mann.

    xxx

Leave a Reply to Eva Laufey Kjaran - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *