Kaffikerling

Ég er mikil kaffikerling og finnst fátt um betra en að drekka gott kaffi, sérlega í morgunsárið og í góðum félagsskap. Það gildir það sama um kaffið og matinn – sameiningartákn. Að mínu mati, að hitta góða vini yfir kaffibolla er yndislegt.
Ég fékk svo frábæra sendingu frá mömmu í gær, rauða kaffivél. Kaffivél sem ég get dúllast í, ég drekk bara kaffi hér á heimilinu og því er leiðinlegt að hella upp á heila könnu bara fyrir mig. En núna get ég dúllað mér með einn og einn bolla, ég og nýja vinkonan mín erum að vinna í því að laga hágæða cappucino bolla.. erum nálægt því.
Ó svo mikill rómans hér á Vesturgötunni í morgunsárið. Ég og kaffið, ég og kaffið.
Njótið dagsins xxx

Endilega deildu með vinum :)