Fáeinir dagar í áramót og þá er nú aldeilis tilefni til þess að gleðjast með fjölskyldu og vinum.
Í nýjasta tölublaði Gestgjafans er að finna bestu uppskriftirnar árið 2012. Þar að auki eru uppskriftir að kokteilum sem henta mjög vel í áramótapartí. Mér fannst regulega gaman að blanda þessa kokteila og ég hlakka mikið til að blanda nokkra um áramótin með vinum mínum.
Þeir kokteilar sem er í miklu eftirlæti hjá mér eru Mojito með ástaraldin og Jóla Magnús.
Magnús Örn Sölvason sem starfar á veitingastaðnum Galító á Akranesi fékk fyrstu verðlaun fyrir þann kokteil á Íslandsmeistaramóti barþjóna. Án efa jólakokteillinn í ár.
Mæli svo sannarlega með að þið blandið nokkra ljúffenga kokteila um áramótin með fólkinu ykkar.
Njótum þess að vera saman og göngum hægt um gleðinnar dyr.
xxx
Eva Laufey Kjaran