Kleinuhringir með vanillu og bleikum glassúr.

Kleinuhringjagleðin ræður ríkjum í
höfuðborginni um þessar mundir og margir fagna því að ein stærsta
kleinuhringjakeðja er komin til landsins. Mér finnst þess vegna tilvalið að
koma með uppskrift að einföldum og ljúffengum kleinuhringjum fyrir þá sem nenna
ekki að bíða í röð eða hafa ekki kost á að fara og fá sér einn Dunkin Donuts.
Það er ekkert mál að baka þessa kleinuhringi, það eina sem þurfið er gott
kleinuhringjaform sem fæst meðal annars í Hagkaup. Þetta er að sjálfsögðu
hollari útgáfa að kleinuhringjum þar sem þeir eru ekki djúpsteiktir. En við
erum svosem ekkert að spá í hollustu þegar kleinuhringir eru á annað borð. Það
má nú leyfa sér við og við, mæli með að þið prófið þessa kæru lesendur og
njótið.

Kleinuhringir með vanillubragði og bleikum glassúr

2,5 dl Kornax hveiti
1,5 tsk. Lyftiduft
3 msk sykur
1 – 1,5 dl ab mjólk
2 msk brætt smjör
1 egg, pískað
1 tsk vanilla extract eða dropar
½ – 1 tsk vanilluduft (eða fræin úr
vanillustöng)
Aðferð:
  1. Blandið öllu saman í skál, ef ykkur
    finnst deigið of þurrt þá bætið þið meiri ab mjólk út í deigið.Smyrjið kleinuhringjaform og sprautið
    deiginu jafnt í formin.
  2. Bakið við 180°C í 8 – 10 mínútur eða
    þangað til þeir verða gullinbrúnir.
  3. Leyfið þeim að kólna og skreytið þá með
    góðum glassúr.

 

Bleikur glassúr
50 g smjör, brætt
150 – 200 g flórsykur
Vatn eftir þörfum
Vanilludropar, magn eftir smekk
Bleikur matarlitur, magn eftir smekk (þið getið líka notað
Ríbena sólberjasafa)
Aðferð:
  1. Bræðið
    smjör í potti.
  2. Blandið
    flórsykrinum saman við og hrærið stöðugt, bætið vatninu og vanillu saman við og hrærið þar
    til þið eruð ánægð með áferðina á glassúrnum.
Njótið með ísköldu mjólkurglasi.

 

 

 

 

 

 

 

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefnið sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

2 comments

  • Sæl vertu. Hvar keyptir þú kleynuhringjaformið? Það fæst ekki í Hagkaup á Akureyri og reyndar ekki í neinni búð á Akureyri sem selur bökunarform. Kærar kveðjur, Elín Svava.

    • Sæl. Ég fékk það í Hagkaup í Kringlunni fyrir nokkrum mánuðum. Annars er Allt í köku t.d. að selja formin og þau eru með vefverslun sem ég mæli með að þú skoðir 😉

      Bestu kveðjur

      Eva

Leave a Reply to Eva Laufey Kjaran - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *