Kleinuhringjagleðin ræður ríkjum í
höfuðborginni um þessar mundir og margir fagna því að ein stærsta
kleinuhringjakeðja er komin til landsins. Mér finnst þess vegna tilvalið að
koma með uppskrift að einföldum og ljúffengum kleinuhringjum fyrir þá sem nenna
ekki að bíða í röð eða hafa ekki kost á að fara og fá sér einn Dunkin Donuts.
Það er ekkert mál að baka þessa kleinuhringi, það eina sem þurfið er gott
kleinuhringjaform sem fæst meðal annars í Hagkaup. Þetta er að sjálfsögðu
hollari útgáfa að kleinuhringjum þar sem þeir eru ekki djúpsteiktir. En við
erum svosem ekkert að spá í hollustu þegar kleinuhringir eru á annað borð. Það
má nú leyfa sér við og við, mæli með að þið prófið þessa kæru lesendur og
njótið.
Kleinuhringir með vanillubragði og bleikum glassúr
vanillustöng)
- Blandið öllu saman í skál, ef ykkur
finnst deigið of þurrt þá bætið þið meiri ab mjólk út í deigið.Smyrjið kleinuhringjaform og sprautið
deiginu jafnt í formin. - Bakið við 180°C í 8 – 10 mínútur eða
þangað til þeir verða gullinbrúnir. - Leyfið þeim að kólna og skreytið þá með
góðum glassúr.
Ríbena sólberjasafa)
- Bræðið
smjör í potti. - Blandið
flórsykrinum saman við og hrærið stöðugt, bætið vatninu og vanillu saman við og hrærið þar
til þið eruð ánægð með áferðina á glassúrnum.