Maren systir mín verður þrítug á föstudaginn og var ég búin að segjast ætla að baka eitthvað fyrir veisluna þannig ég „neyddist“ til þess að prufa eina uppskrift í dag og mikil ósköp sem er gaman að dunda sér í bakstri. Að vísu gat ég ekki mikið dundað mér því skólabækurnar störðu grimmt á mig á meðan að ég naut mín við skreytingar.
En hér er pínu prufukeyrsla á vanillubollakökum með hvítusúkkulaðikremi.
Uppskrift kemur sem allra fyrst.