Fyrir þrjá – fjóra
Kjúklingatacos sem bráðnar í munni
- 4 kjúklingabringur
- 4 msk olía
- 2 tsk paprikukrydd
- 2 tsk malaður kóríander
- 2 tsk salt
- 1 tsk pipar
- 2 tsk cumin
- 1 msk rifinn límónubörkur
- Safi úr hálfri límónu
- 2 hvítlauksrif
- 1 laukur
- Tortillakökur
- Ferskt mangósalsa
- Lárperumauk
- Sýrður rjómi
- Hreinn fetaostur
Aðferð:
- Blandið saman olíu og þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan í skál, rífið niður límónubörk og hvítlauksrif og kreistið safann úr hálfri límónu. Hrærið öllu vel saman.
- Leggið kjúklinginn í kryddlögin og nuddið honum í kjúklinginn (gott að geyma í sólarhring ef þið hafið tíma, í ísskáp).
- Steikið kjúklinginn í tvær mínútur á hvorri hlið, saxið laukinn og bætið út á pönnuna í lokin og steikið í mínútu eða þar til laukurinn er orðinn mjúkur í gegn.
- Ef þið notið pönnu sem þolir að fara inn í ofn þá er sniðugt að nota hana en annars færið þið réttinn yfir í eldfast mót og bætið 2 dl af vatni saman við, gildir einnig um ef þið notið pönnu.
- Setjið réttinn inn í ofn við 200°C í 25 mínútur.
- Rífið kjúklinginn niður og veltið kjúklingakjötinu upp úr soðinu sem er á pönnunni eða í eldfasta mótinu.
- Berið kjúklinginn fram í tortilla kökum með sýrðum rjóma, fersku lárperumauki, salsa og hreinum fetaosti.
Á meðan kjúklingurinn er í ofninum er tilvalið að útbúa einfalt lárperumauk og ferskt salsa.
Ferskt salsa
- 1 laukur
- 12-14 kirsuberjatómatar eða tveir stórir
- 1 mangó
- 2 stilkar vorlaukur
- Safinn úr hálfri límónu
- Salt og pipar
- Góð olífuolía
Aðferð:
- Skerið hráefnin mjög smátt og blandið saman í skál, kryddið til með salti og pipar.
- Kreistið safann úr hálfri límónu yfir og hellið svolítið af ólífuolíu yfir eða um það bil matskeið. Geymið í kæli áður en þið berið fram.
Lárperumauk
- 4 lárperur (mjúkar)
- 1 hvítlauksrif
- Handfylli kóríander
- ¼ rautt chili
- ½ rauðlaukur
- Safinn úr hálfri límónu
- Salt og pipar
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota þar til maukið er silkimjúkt. Smakkið ykkur til með salti og pipar.
- Berið strax fram og njótið.
Þið getið séð aðferðina betur á Instagramminu mínu en þið finnið mig undir evalaufeykjaran.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir