Kanilsnúðar með rjómaostakremi

Þessir kanilsnúðar eru gjörsamlega geggjaðir og ég mun baka þá aftur og aftur. Amerískir kanilsnúðar eins og þeir gerast bestir! Ég fékk þessa uppskrift að láni hér, verður maður ekki að prófa uppskrift sem kemur frá Ameríku fyrst maður er að þessu? 😉

*Þessi uppskrift gefur 12-14 snúða

Deigið:

  • 1 msk þurrger
  • 175 ml mjólk
  • 95 g sykur + 1 msk
  • 95 g smjör (brætt, ég gleymdi að bræða það og notaði smjör við stofuhita sem kom vel út )
  • 1 tsk kanill
  • 2 egg
  • 600 g hveiti
  • 2 tsk vanilludropar
  • Salt á hnífsoddi

Aðferð:

  1. Hitið mjólkina, hún á að vera volg. Bætið þurrgeri og 1 matskeið af sykri eða hunangi saman við og hrærið. Setjið viskastykki yfir skálina og látið standa þar til byrjar að freyða í skálinni.
  2. Þegar gerblandan er klár þá bætið þið eggjum, sykri, vanilludropum og smjöri út í og hrærið með hnoðaranum í hrærivélinni.
  3. Því næst fer hveitið, kanill og saltið. Hnoðið deigið þar til það er slétt og fínt, ef ykkur finnst deigið of blautt þá setjið þið smá hveiti saman við.
  4. Hnoðið deigið í 2-3 mínútur með höndunum og setjið síðan deigið aftur í skálina, viskastykki yfir og leyfið því að hefast í klukkustund.

Fyllingin:

  • 160 g púðursykur
  • 140 g smjör, við stofuhita
  • 2 msk kanill

Aðferð:

  1. Þeytið smjörið þar til það er létt og ljós, bætið púðursykrinum saman við og kanil. Þeytið þar til fyllingin er orðin létt í sér.
  2. Þegar deigið hefur náð að tvöfalda stærð sína þá er gott að setja smá hveiti á borðflöt og fletja deigið út, því næst smyrjið þið fyllingunni á deigið og rúllið upp. Skerið deigið í jafn stóra bita og raðið í pappírsklætt eldfast mót. Leyfið snúðunum hefast enn einu sinni í 30 mínútur.
  3. Hitið ofninn í 180°C (blástur) og bakið í 18-20 mínútur. Á meðan snúðarnir eru í ofninum þá er gott að útbúa rjómaostakrem.

Rjómaostakrem. *þetta er stór skammtur, það er trúlega alveg nóg að skipta henni í tvennt og gera helminginn

  • 140 g smjör, við stofuhita
  • 150 g rjómaostur, við stofuhita
  • 250 g flórsykur + meira ef kremið er of blautt
  • 2 tsk vanilludropar

Aðferð:

  1. Þeytið smjör og rjómaost saman þar til létt og ljós, mikilvægt að nota vörur sem eru við stofuhita.
  2. Bætið flórsykrinum og vanillu saman við og þeytið áfram, ef ykkur finnst kremið of blautt þá bætið þið meiri flórsykri saman við.
  3. Leyfið snúðunum að kólna örlítið þegar þeir koma út úr ofninum.. ég beið í ca 30 sekúndur en kannski er gott að bíða lengur, ég hef enga þolinmæði.
  4. Smyrjið kreminu á snúðana og berið strax fram. Ylvolga og dásamlega!

Þið getið séð nákvæmar leiðbeiningar á Instagramminu mínu, þið finnið mig undir evalaufeykjaran.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *