Indverskt lambalæri

Indverskt lambalæri

Fyrir 4 – 5

  • 2 kg lambalæri (það var 2 kg með beininu, ég vigtaði það ekki úrbeinað)
  • 350 g grískt jógúrt
  • 5 hvítlauksrif
  • ½ rautt chili
  • 2 tsk salt
  • 2 tsk pipar
  • 2 tsk cumin
  • 2 tsk karrí
  • 3 tsk garam masala
  • 2 tsk malaður kóríander
  • 1 tsk kóríanderfræ
  • 2 tsk rifið engifer
  • Safi úr einni sítrónu
  • Handfylli smátt saxað kóríander
  • 2 laukar
  • 2 msk olía

Aðferð:

  1. Blandið saman gríska jógúrtinu, kryddunum sem eru talin upp hér að ofan og smátt söxuðu kóríander, chili og nýrifnu engifer. Kreistið einnig sítrónusafa út í og hrærið öllu vel saman.
  2. Ég keypti úrbeinað lambalæri og nuddaði marineringunni vel á kjötið, setti kjötið í skál með marineringunni og leyfði því að standa í kæli í 24 klst. Það er alveg nóg að leyfa kjötinu að standa í marineringunni í 3 – 4 klst en það verður að sjálfsögðu bragðmeira því lengur sem það fær að draga í sig kryddin.
  3. Hitið ofninn í 180°C.
  4. Setjið kjötið í eldfast mót, skerið 2 lauka og setjið í mótið. Hellið smá olíu yfir og inn í ofn við 180°C í 40 mínútur. Stillið því næst á grillstillingu á ofninum og grillið lærið í 20 mínútur.
  5. Leyfið kjötinu að hvíla í lágmark 15 mínútur.
  6. Berið kjötið fram með raita jógúrtsósu, hrísgrjónum, naan brauði og nýja uppáhaldinu mínu, blómkáls-og kartöflu réttur sem þið þurfið að prófa.

Naan brauð

  • 150 ml volgt vatn
  • 200 g hveiti + meiri ef ykkur finnst deigið of blautt
  • 2 tsk þurrger
  • 1 tsk hunang
  • 1 tsk salt
  • 3 msk ab mjólk
  • 1 msk ólífuolía
  • 1msk brætt smjör
  • 1 msk ólífuolía
  • 1 hvítlauksrif
  • ½ tsk salt
  • 1 tsk smátt söxuð steinselja

Aðferð:

  1. Blandið vatni, geri og hunangi saman í skál.
  2. Leggið viskastykki standa yfir skálina og um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerið tilbúið.
  3. Bætið því næst hveitinu, saltinu, ab mjólkinni og ólífuolíunni saman við og hrærið vel saman.
  4. Stráið smá hveiti á borð og hnoðið þar til deigið verður samfellt og fínt, leyfið deiginu að hefast í klukkustund.
  5. Skerið deigið í litla bita og mótið kökur, þær eiga að vera fremur þunnar.
  6. Steikið á heitri pönnu á hvorri hlið í 1-2 mínútur.
  7. Blandið saman í skál, smjöri, olíu, salti, steinselju og hvítlauk og penslið á naan brauðin þegar þau eru nýsteikt. Það gefur þeim dásamlegan hvítlaukskeim! Má auðvitað sleppa því ef þið eruð ekki hrifin af hvítlauk.

Raita sósa

  • 250 g ab mjólk
  • ½ agúrka
  • Salt og pipar
  • 2 msk smátt saxður kóríander

Aðferð:

  1. Saxið hráefnin afar smátt og blandið öllu vel saman í skál, geymið helst í kæli í smá stund áður en þið berið sósuna fram

Aloo Gobi – með twisti!

Fékk hugmyndina hjá vinkonu minni henni Emilíu Ottesen

  • 3 stórar bökunarkartöflur
  • ½ höfuð blómkál
  • 1 tsk salt
  • Olía
  • 3 tsk karrí
  • 300 ml kotasæla
  • 4 msk mango chutney (ég notaði chutney  frá merkinu Geeta‘s og það var rosalega gott)

Aðferð:

  • Hitið ofninn í 200°C.
  • Skerið kartöflur í litla teninga og blómkálið sömuleiðis smátt.
  • Kryddið með salt og karrí, blandið vel saman og leggið í eldfast mót.
  • Hellið vel af olíu yfir og eldið við 200°C í 20 mínútur.
  • Þegar 20 mínútur eru liðnar af eldunartímanum, bætið þá kotasælunni og mango chutney saman við og hrærið vel. Eldið áfram í 20 mínútur og berið strax fram.

Þið getið fylgst með aðferðinni á Instagram en þið finnið mig undir evalaufeykjaran.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessar uppskrifir fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *