Kökubókin mín Kökugleði Evu kom út þann 3.nóvember og að sjálfsögðu var bókinni fagnað með góðu fólki. Útgáfuhófið var á veitingastaðnum Bazaar á Oddson og voru bollakökur og ljúffengt freyðivín (Codorniu Cava fyrir áhugasama) í boði.
Hér eru nokkrar myndir úr útgáfuhófinu en ljósmyndarinn Haraldur Guðjónsson tók þessar myndir. Ég er enn að koma mér niður á jörðina eftir þetta frábæra partí – takk enn og allir fyrir komuna!