TARTE TATIN
- 1 pakki smjördeig
- 5 perur eða epli
- 4 msk sykur
- 4 msk smjör
- 1 tsk sítrónubörkur
- Vanilluís
Aðferð:
- Stillið ofninn í 180°C.
- Afhýðið eplin og skerið í nokkra bita.
- Hitið sykurinn á pönnu sem á fara inn í ofn. Um leið og hann byrjar að bráðna þá bætið þið smjörinu út á pönnuna.
- Raðið eplabitunum á pönnuna og dreifið rifnum sítrónuberki yfir.
- Snúið eplunum við einu sinni og steikið í 3 -4 mínútur á hvorri hlið.
- Smjördeigið á að vera örlítið stærra en pannan sjálf og gott er að þjappa köntunum ofan í pönnuna svo það myndist ekki gat.
- Setjið pönnuna inn í ofn og bakið við 180°C í 40 – 45 mínútur. Um leið og smjördeigið er orðið gullinbrúnt og búið að lyfta sér er kakan klár.
- Takið pönnuna út úr ofninum, setjið þann disk sem kakan á að fara á yfir pönnuna og hvolfið henni eins hratt og þið getið en munið að fara varlega.
Sáldrið flórsykri yfir kökuna í lokin og berið hana fram með vanilluís.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.