Það jafnast fátt á við góða og matarmikla súpu á köldum dögum. Þessi súpa er bæði svakalega einföld og góð. Ég mæli hiklaust með að þið prófið. Spergilkálssúpa 1 msk ólífuolía 300 g spergilkál 2 stórar kartöflur, um350 g 2 hvítlauksgeirar ½ laukur 1,5 l kjúklingasoð (soðið vatn + 2 kjúklingateningar)…
Mánudagsfiskurinn: Æðisleg bleikja í teriyaki sósu með fetaosti. Þessi réttur er afskaplega einfaldur og fljótlegur sem er alltaf mikill plús á þreyttum mánudegi. Þriðjudagur: Æðisleg rif með asískum blæ. Þetta er rétturinn sem setningin „eitt sinni smakkað, þú getur ekki hætt“ á vel við. Miðvikudagur: Mexíkóskt kjúklingasalat með mexíkó-ostasósu og…
Sumir dagar eru ansi þéttir og mikið sem þarf að gera, en það þýðir þó ekki að sleppa við að hafa eitthvað gott í kvöldmatinn. Það er alltaf hægt að finna smá tíma fyrir matargerð. Að búa til einfalt og matarmikið salat tekur ekki lengri tíma en 20 mínútur. Þetta salat geri…
Ég gæti borðað súpur í öll mál, mér finnst fátt betra en góð og matarmikil súpa á köldu haustkvöldi. Súpur sem eru með allskyns góðgæti í eru í sérlegu uppáhaldi. Mexíkósk kjúklingasúpa er í sérflokki, hún er svo góð að mínu mati. Ég hef nú bloggað um hana áður en…
Ég er mikil súpu kona og finnst fátt betra en góð súpa. Þessi kjúklingasúpa er í miklu uppáhaldi, mér finnst hún best þegar að hún er búin að malla lengi. Það er best að taka sér góðan tíma til þess að dúlla sér við súpugerð. Það er líka svo notalegt…
Er nokkuð betra en gott pasta og gott rauðvín? Einfalt, fljótlegt og ótrúlega gott. Ég elda mér oft pasta og þessi pastaréttur er ofboðslega góður að mínu mati og mjög fljótlegur, sem er mikill kostur. Þessi uppskrift er fyrir tvær manneskjur myndi ég halda. Pasta’Broccoli 200 gr. Penne pasta…
Sesar salat er í miklu uppáhaldi hjá mér. Frumútgáfan af Sesar salati er romaine salat eða iceberg, ristaðir brauðmolar, rifinn ferskur parmesan ostur og sesar salat sósa. Það er ósköp gott að bæta við kjúkling, beikoni og öðru grænmeti. Uppskriftin hér fyrir neðan er fyrir þrjá – fjóra. Sesar…
Mér finnst pestó alltaf svakalega gott. Mér finnst pestó gott með kjúkling, pasta, fisk og sérlega gott með brauði. Hægt að nota það með svo mörgu. Sérlega núna eftir páskana, þá þrái ég eitthvað létt og gott. Búin að borða of mikið af kjöti og þungum máltíðum. Hér kemur uppskrift…
Mér finnst dásamlegt að vakna þegar að sólin skín og veðrið er gott. Það er merkilegt hvað veðrið hefur mikil áhrif á skapgerðina. Það verður allt svo mikið betra þegar að dagurinn verður lengri og birtan fær að njóta sín. Ég verð betri með hverjum deginum sem að líður svo…
Helgi enn á ný. Þessi helgi leggst svo yndislega vel í mig… að því leytinu til að ég eyði henni með góðu fólki og ljúffengum mat. Ójá, ég segi það satt. JólaBrunch í turninum á morgun með fögrum píum. Seinna um daginn fer ég út að borða og í leikhús…