Veðrið er búið að vera dásamlegt í dag, ég fór í klippingu og átti huggulegt deit með vinkonu minni í Reykjavíkinni.
Þegar heim var komið þá vorum við bróðir minn svo asskoti dugleg í garðinum, settum niður blóm og reittum arfa. Það kalla ég duglegt fólk! Ég er alls ekki dugleg að dúllast í garðinum, ég var einu sinni dugleg í bæjarvinnunni en þá fékk starfsmaður vikunnar snúð og kakómjólk, þá var hart barist og ég komst í vinnustuð.
Eins vandræðilegt og það nú hljómar. Góð og gild saga engu að síður.
Ég vona að þið hafið átt góðan dag í blíðunni
Líf og fjör í miðborginni, listamenn nutu sín.
Anna Margrét var virkilega ánægð með listina.
Falleg sumarblóm
Arfareitarinn sem fékk ekki snúð fyrir vinnu sína í dag.
xxx
Eva Laufey Kjaran