Það er aldeilis ljúft að vera hér í Noregi hjá fjölskyldu minni. Í dag vorum við að rölta um og skoða Stavanger, ég á eftir að deila frekar mikið af myndum með ykkur af þessum fallega bæ. Veðrið er líka einstaklega gott og það verður allt svo fallegra í sólinni. Á myndinni hér að ofan má sjá Daníel Mar grallaraspóa, hann er yngsti sonur systur minnar.
Daníel Mar og Maren Rós, sætu og krúttlegu mæðgin.
Kristían Mar Kjaran draumaprins.
Páskaskraut í öllum búðum.
Ég og Maren systir mín.
Eftir gönguna var okkur orðið svolítið kalt og við vorum auðvitað svöng, það var því ekkert annað í stöðunni en að hamborgara sig upp. Frekar ljúfur dagur á enda. Ég vona að þið hafið það gott kæru vinir.
xxx
Eva Laufey Kjaran