Þegar að ég kom heim úr skólanum í gær þá þráði ég eitthvað gott í matinn.
Ég elska pasta og því var dásamlegur pastaréttur fyrir valinu. Spínat- og ostafyllt canelloni. Þessi réttur er í miklu uppáhaldi hjá Mareni systur minni og það hefði verið ansi gott að fá hana til mín í mat. En því verr og miður þá býr hún í útlandinu. Ég borðaði þó algjörlega fyrir hennar hönd í gær og gott betur en það. Mikil ósköp sem það er gott að borða pasta sem er fyllt með allskyns góðgæti.
Þessi dásamlegi réttur á rætur sínar að rekja til Ítalíu, en ekki hvað? Ítölsk matargerð heillar mig hvað mest og því væri það algjör draumur í dós að heimsækja Ítalíu einn daginn. Matarferð til Ítalíu er svo sannarlega á draumalistanum.
Þessi réttur er ótrúlega einfaldur og fljótlegur. Ég mæli því hiklaust með að þið prufið hann um helgina.
Spínat- og ostafyllt cannelloni.
Fyrir u.þ.b. þrjá til fjóra
500 g
kotasæla
kotasæla
200 g spínat
1 msk
ólífuolía
ólífuolía
3 msk
basilika, smátt söxuð
basilika, smátt söxuð
2
hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
3 – 4 msk
rifinn parmesan ostur
rifinn parmesan ostur
Rifinn mozzarella ostur
Tómata
passata frá Sollu ca. Hálf krukka
passata frá Sollu ca. Hálf krukka
3/4 dós af
söxuðum tómötum frá Heinz, með hvítlauk, oreganó og basiliku.
söxuðum tómötum frá Heinz, með hvítlauk, oreganó og basiliku.
2 tsk
tómatpúrra
tómatpúrra
Salt og
nýmalaður pipar
nýmalaður pipar
(á myndinni er chili en ég ákvað að nota það ekki að þessu sinni)
1.
Hitið
olíu á pönnu við vægan hita. Saxið hvítlaukinn smátt og setjið hann á pönnuna,
rétt til þess að mýkja laukinn.
Hitið
olíu á pönnu við vægan hita. Saxið hvítlaukinn smátt og setjið hann á pönnuna,
rétt til þess að mýkja laukinn.
2. Bætið spínatinu saman við og leyfið því að malla á pönnunni í tvær mínútur, hrærið lauslega í á meðan. Kryddið til með salt og pipar.
3.
Setjið
kotasælu í skál bætið spínat (þerrið spínatið vel áður), basiliku og dásamlegum
rifnum parmesan osti saman við.
Setjið
kotasælu í skál bætið spínat (þerrið spínatið vel áður), basiliku og dásamlegum
rifnum parmesan osti saman við.
4.
Blandið
þessu vel saman með og smakkið ykkur til
með salti og pipar.
Blandið
þessu vel saman með og smakkið ykkur til
með salti og pipar.
5.
Sjóðið
lasagneplöturnar eða pastarörin samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, aðskiljið
plötur eða rör og setjið til hliðar undir rakan klút. Ég notaði ferskar
lasagneplötur að þessu sinni.
Sjóðið
lasagneplöturnar eða pastarörin samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, aðskiljið
plötur eða rör og setjið til hliðar undir rakan klút. Ég notaði ferskar
lasagneplötur að þessu sinni.
Setjið
2 – 3 msk af fyllingu á hverja plötu. Ég
var með sex plötur og því var ég með sex rúllur. Ef þið viljið minni rúllur þá
skerið þið plöturnar til.
2 – 3 msk af fyllingu á hverja plötu. Ég
var með sex plötur og því var ég með sex rúllur. Ef þið viljið minni rúllur þá
skerið þið plöturnar til.
6. Rúllið
hverri plötu varlega upp, Þekjið
botninn á eldföstu móti með sósunni og raðið rúllunum í eldfasta mótið.
hverri plötu varlega upp, Þekjið
botninn á eldföstu móti með sósunni og raðið rúllunum í eldfasta mótið.
Sósan er af einföldustu gerð.
– Setjið tómata passata, söxuðu tómatana og tómatpúrru í pott, hitið sósuna við vægan hita í örfáar mínútur. Bætið smá basiliku saman við, kryddið til með salti og pipar. Ég lét sósuna i blandara til þess að hafa hana silkimjúka en það er líka ansi gott að hafa tómatbita í sósunni. Svo þetta er aljört smekksatriði.
Hellið
sósunni yfir, því meiri sósa því betri verður rétturinn að mínu mati
sósunni yfir, því meiri sósa því betri verður rétturinn að mínu mati
7. Dreifið
rifnum mozzarella osti yfir réttinn og smávegis af rifnum parmesan osti.
rifnum mozzarella osti yfir réttinn og smávegis af rifnum parmesan osti.
8. Inn í ofn við 180°C í 25 – 30 mínútur. Eða þar til osturinn er orðinn gylltur og fínn.
Augnyndi. Ilmurinn af réttinum er dásamlegur.
Pasta, flæðandi ostur og góð sósa. Betra verður það varla.
Berið fram með fersku salati og ef til vill snittubrauði. Þetta er án efa réttur sem fær öll andlit til þess að brosa, það er ekkert betra en að sjá bros á fólki þegar að það er ánægt með mat og að heyra „mmm“ er náttúrlega punkturinn yfir i-ið.
Ég vona að þið eigið dásamlega helgi framundan og njótið þess að gera vel við ykkur í mat og drykk.
Góða helgi kæru vinir
xxx
Eva Laufey Kjaran