Ofnbökuð ýsa í pestósósu.

Ofnbökuð ýsa í pestósósu.

  • 700 g ýsa
  • 350 g pestó með sólþurrkuðum tómötum
  • 4 dl fetaostur (3-4 msk af olíunni má fylgja með)
  • 2 dl svartar ólífur
  • 10 kirsuberjatómatar
  • Salt og pipar
  • Nýrifinn parmesan, magn eftir smekk
Aðferð:
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Skerið fiskinn í jafn stóra bita og leggið í eldfast mót, kryddið til með salti og pipar.
  3. Blandið saman í sér skál pestóinu og fetaostinum, dreifið sósunni yfir fiskinn.
  4. Skerið niður ólífur og tómata, raðið yfir pestósósuna.
  5. Rífið niður parmesan og sáldrið yfir réttinn í lokin, nóg af honum.
  6. Setjið fiskréttinn inn í ofn og bakið við 180°C í 25-30 mínútur.
Berið fiskréttinn fram með fersku salati!
Njótið vel!
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

3 comments

Leave a Reply to Silja - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *