MARENSBOTNAR
- 6 stk Stk eggjahvítur
- 300 g sykur
- 1 ½ tsk mataredik
- 1 tsk vanilludropar
- Salt á hnífsoddi
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 100°C.
- Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum og þeytið vel á milli.
- Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar marensinn er orðinn stífur.
- eiknið hring á bökunarpappír, u.þ.b. 24 cm í þvermál, og smyrjið marens á pappírinn. Bakið marensinn við 100° C í 90 mín.
- Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið marensinn kólna í alla vega 3 klst í ofninum eða yfir nótt eins og ég geri gjarnan.
Rjómakrem með Daim súkkulaði
- 200 ml rjómi
- 2 – 3 msk flórsykur
- 100 g Daim súkkulaði
Aðferð:
- Léttþeytið rjóma og bætið flórsykrinum út í.
- Saxið súkkulaðistykkið ansi smátt, blandið súkkulaðinu varlega saman við rjómann með sleikju.
- Setjið rjómakremið á tertuna og skreytið kökuna með allskyns berjum, setjið smávegis af smátt söxuðu daim yfir og ef þið viljið þá er æðislegt að setja eina eða tvær matskeiðar af góðri karamellusósu yfir í lokin. Berið strax fram og njótið vel.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir