Oreo Cupcakes

12 Dásamlegar Oreo cupcakes

125 gr. Smjör
2 dl. Sykur
2 Egg
1 dl. Mjólk
3 dl. Hveiti
1,5 tsk. Lyftiduft
1 tsk. Vanillusykur (Eða vanilla extract)
50 gr. Oreo kexkökur, mulið í grófa bita. 

1. Hrærið saman í hrærivél smjöri og sykri, blandið síðan einu og einu eggi út í. 
3. Bætum einu og einu eggi saman við, gott að hræra fyrsta eggið saman við í tvær mínútur og bæta síðan hinu við. 
4. Blandið þurrefnum saman í aðra skál þ.e. hveiti, vanillusykur og lyftiduft. Sigtið þrisvar til fimm sinnum í gegnum sigti. 

5. Síðan er hveitiblöndunni og mjólkinni blandað saman við smjörblönduna, smátt og smátt. 
Eftir nokkrar mínútur verður áferðin silkimjúk og þá er tími til að blanda oreo kökunum saman við í hér um bil eina mínútu eða svo. 

Dásamlegt deig!
Þá er að setja deigið í bollakökuform og inn í ofn við 200°C í 20 mínútur. 

Tilbúnar og fallegar. Kælið kökurnar vel áður en þið setjið krem ofan á.
Þessi grænu form eru keypt í Hagkaup og eru ótrúlega góð. Stór og góð. En ég ákvað að skipta um form að loknum bakstrinum vegna þess að mér fannst hvít form koma betur út, þ.e.a.s. fallegra myndefni. En það skiptir náttúrlega engu máli hvaða form þið notið, kökurnar smakkast alltaf jafn vel. 

Ég notaði mjög einfalt krem sem kom nokkuð vel út. 

2 dl. Rjómi 
2 1/2 msk. Flórsykur
1/2 tsk. Vanilla extract
6 Oreo kexkökur
Byrjum á því að þeyta rjómann, bætum vanillu extract og flórsykrinum saman við í pörtum. 
Ég sigtaði mulið oreo út í kremið sem fór á nokkrar kökur. Þið sjáið á myndunum að þær eru dekkri. 
Ég sigtaði mulið Oreo yfir allar kökurnar og braut nokkrar kökur og notaði sem skraut. 
Reglulega góðar og einfaldar kökur. Að mínu mati getur ekkert klikkað sem inniheldur Oreo. 

Beauties
Njótið vel. 
xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

16 comments

  • Váts hvað þetta er girnilegt!
    Er með eina spurningu. Alltaf í uppskriftum þegar það er sagt "smjör" þá er ég alltaf í vandræðum með hvort það eigi að vera bráðið eða ekki. Nú sýnist mér þú ekki vera með það bráðið þarna, en skorið í litla teninga, verður það ekkert kekkjótt?
    Ætti að mýkja það aðeins áður í örb.ofni eða?

    Hlakka til að prufa 🙂

    P.s veit að margir sem hafa verið með blogg á blogger.com eins og þú hafa tekið út úr comment-kerfinu að maður þarf að skrifa þessi ruglingslegu orð sem birtast (vírus-vörn). Bara hugmynd, er alveg viss um að fleiri myndu kommenta hjá þér, því þetta er leiðinlegast parturinn 😉

    Kv. B

  • Ég nota alltaf smjör við stofuhita. Þá er smjörið mjúkt og mjög auðvelt að hræra það saman við sykur. En það er líka hægt að setja smjörið í smá stund í örb.ofn. En bara í smá stund, það er ekki gott að smjörið bráðni.

    Takk fyrir ábendinguna með athugasemdakerfið, ég þarf eitthvað að skoða þetta. Ég er ferlega léleg á innri vefinn á blogginu en ég fæ einhvern snilling til þess að aðstoða mig.

    Kær kveðja

    Eva

    • Vegna þess að þau grænu voru heldur stærri bollakökuform og svo fannst mér fallegra að taka myndir af kökunum í formum. Þannig ég ákvað að skipta um form eftir baksturinn, skiptir náttúrlega engu máli í hvernig litum formin eru en mér fannst það bara fallegra myndefni 🙂

  • Ein spuring .. Hvernig nærðu kökunum svona sléttum að ofan? Þegar ég geri bollakökur þá lyftast þær alltaf upp í svona pýramída að ofan 🙂

Leave a Reply to Silja Hanna Guðmundsdóttir - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *