Ljúffengt salat með mozzarella osti og tómötum
- 2 stórar mozzarella kúlur
- 15-20 kirsuberjatómatar
- 2 buff tómatar
- 5 sneiðar hráskinka
- ½ búnt basilíka
- 1 dl ólífuolía
- Salt og pipar
- Balsamikedik
Aðferð:
- Skerið niður tómata og leggið á fat.
- Rífið ostinn yfir tómata og kryddið með salti.
- Steikið hráskinku á pönnu þar til hún er orðin stökk, leggið hana yfir salatið.
- Merjið saman basilíku og ólífuolíu þar til blandan er orðin að pestói, kryddið til með salti og pipar.
- Setjið pestóið yfir salatið ásamt ferskum basilíkublöðum.
- Kryddið salatið með salti og pipar.
- Sáldrið ólífuolíu yfir ásamt smávegis af balsamikediki í lokin áður en þið berið salatið fram!
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.