Jarðarberjaskyrkaka með ferskum berjum
Kexbotn:
- 1 pakki LU Bastogne kex (eða annað gott kex)
- 100 g brætt smjör
Aðferð:
- Setjið kex og brætt smjör í matvinnsluvél og maukið, þrýstið kexblöndunni á botninn og upp með börmunum á bökunarforminu (ég notaði nokkur lítil en yfirleitt nota ég form í stærð 24x25cm)
- Setjið botninn í kæli á meðan þið útbúið fyllinguna.
Skyrfylling:
- 500 g jarðarberjaskyr
- 350 ml rjómi, þeyttur
- 2 msk flórsykur
- 1 tsk vanillusykur eða fræ
Fersk blönduð ber til skrauts
Aðferð:
- Þeytið rjóma og blandið skyrinu saman við ásamt flórsykri og vanillu.
- Hellið skyrfyllingunni í formið og skreytið með ferskum berjum.
- Kælið í 1-2 klst ef þið viljið að kakan sé svolítið stíf annars má auðvitað bera hana strax fram. Svo má auðvitað útbúa kökuna degi áður en þið ætlið að bera hana fram – það getur stundum verið algjör snilld upp á það að spara tíma fyrir matarboð 🙂
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.