Ómótstæðileg skyrkaka með jarðarberjum

Jarðarberjaskyrkaka með ferskum berjum

Kexbotn: 

  • 1 pakki LU Bastogne kex (eða annað gott kex)
  • 100 g brætt smjör

Aðferð:

  1. Setjið kex og brætt smjör í matvinnsluvél og maukið, þrýstið kexblöndunni á botninn og upp með börmunum á bökunarforminu (ég notaði nokkur lítil en yfirleitt nota ég form í stærð 24x25cm)
  2. Setjið botninn í kæli á meðan þið útbúið fyllinguna.

Skyrfylling: 

  • 500 g jarðarberjaskyr
  • 350 ml rjómi, þeyttur
  • 2 msk flórsykur
  • 1 tsk vanillusykur eða fræ

Fersk blönduð ber til skrauts

Aðferð:

  1. Þeytið rjóma og blandið skyrinu saman við ásamt flórsykri og vanillu.
  2. Hellið skyrfyllingunni í formið og skreytið með ferskum berjum.
  3. Kælið í 1-2 klst ef þið viljið að kakan sé svolítið stíf annars má auðvitað bera hana strax fram. Svo má auðvitað útbúa kökuna degi áður en þið ætlið að bera hana fram – það getur stundum verið algjör snilld upp á það að spara tíma fyrir matarboð 🙂

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *