Í maí þá ætla ég að fara með fjórum af mínum bestu vinum til Kaupmannahafnar. Tilhlökkunin er vægast sagt mikil og ég get ekki beðið eftir því að eyða með þeim nokkrum dögum í danaveldi. Við höfðum talað svo lengi um að fara til útlanda saman en höfðum aldrei gert neitt meira í því en að tala um það, en þegar við sáum að vinkona okkar hún Beyonce væri með tónleika í Kaupmannahöfn í maí þá vorum við ekki lengi að panta miða út. Þetta verður stórkostlegt, ég finn það á mér.
Ég er búin að vera að skoða veitingahús á netinu og skoða hvað við getum gert í Kaupmannahöfn, ég hef ekki farið þangað síðan í útskriftarferð í 10.bekk. Mig langaði svo að athuga hvort elskulegu lesendur mínir geta ekki bent okkur á eitthvað sniðugt í Köben í sambandi við mat og afþreyingu. Mér þætti nú mikið vænt um það 🙂
Ég vona að þið eigið góðan dag.
xxx
Eva Laufey Kjaran