Helgin var sérstaklega fljót að líða að þessu sinni, ég og amma komum hingað til Noregs á föstudaginn og förum heim í dag. Þetta hefur verið dásamlegt frí með fjölskyldunni og mikið sem ég hlakka til að fá þau öll heim um jólin, það styttist nú í það.
Svona frí eru alltaf svo fljót að líða og ég væri nú alveg til í að vera nokkra daga til viðbótar, en en. Ég tók mikið af myndum eins og ég geri nú alltaf, ég ætla að deila nokkrum með ykkur… eða já nokkrum. Hér kemur myndaflóð.
Steindór Mar elsti prinsinn minn fór með mér í göngutúr í fallega haustveðrinu
Kristían Mar Kjaran sælkeri var ánægður með kaffihúsaferð
Kristían, amma Rósa og Daníel Mar í stuði
Eva Laufey Kjaran og Kristían Mar Kjaran
Amma mín Stína og Maren Rós systir mín
Helgarbrönsinn og eftirrétturinn eitt kvöldið, kaffi-súkkulaðimús með jarðarberjum. Uppskriftin kemur fljótlega inn á bloggið.
Það er svo afskaplega huggulegt hér í kotinu og ég naut þess að skoða haust matreiðslublöðin
Litlu gaurarnir mínir yfir sig ánægðir að fá ömmu Stínu í heimsókn
Alltaf tilefni til þess að skála
Mæðgurnar fínu
Heitt súkkulaði með risastórum sykurpúða eftir göngutúr í Stavanger, þegar ég segi göngutúr þá meina ég búðarráp
Mamma mín yndislega
Ég er voðalega ánægð með ferðina. Heppin ég að eiga svo góða fjölskyldu.
xxx
Eva Laufey Kjaran